Silungsveiði - Fish Partner Veiðifélag - Veiðileyfi um land allt

Silungsveiði

Við hjá Fish Partner bjóðum upp á mikið úrval veiðisvæða með urriða og bleikju. Silungsveiði er okkar sérsvið og þreytumst við aldrei á því að kanna nýjar veiðilendur og kynna ný svæði fyrir veiðimönnum. Þau svæði sem við bjóðum upp á eru rjóminn af því sem við höfum uppgötvað.

Ölfusvatnsárós er við sunnanvert Þingvallavatn og er þekktur fyrir stóra urriða. Veiðileyfið nær yfir hálfan dag í Ölfusvatnsárósi og hálfan dag í Þorsteinsvík.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 2 á hvoru svæði · Seldar tvær saman
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Þingvallavatn – Ölfusvatnsárós

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Þorsteinsvík er þekkt fyrir stóra urriða sem safnast við heitavatnsuppsprettur á svæðinu. Veiðileyfið nær yfir hálfan dag í Þorsteinsvík og hálfan dag í Ölfusvatnsárósi.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 2 á hvoru svæði · Seldar tvær saman
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Þingvallavatn – Þorsteinsvík

Við ós Villingavatnsár í Þingvallavatni heldur stór urriði til allt sumarið. Svæðið nær yfir ósinn og strandlengjuna í kring og er veitt á tvær stangir.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 2
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum urriða skal sleppt

Skoða Þingvallavatn – Villingavatnsárós

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Veiðisvæðið við Kaldárhöfða nær yfir syðsta hluta Þingvallavatns og norðanvert Úlfljótsvatn. Þar veiðast bæði stórir urriðar og bleikja á fjölbreyttu veiðisvæði

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn og Úlfljótsvatn
Veiðitímabil: 1. maí–15. september
Stangir: 6–10 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga og spún · Öllum urriða skal sleppt

Skoða Þingvallavatn – Kaldárhöfða

Vorveiðin nær yfir svæði 2 og 3 í Blöndu, þar sem veiðast bleikja, urriði og sjóbirtingur. Stangir eru seldar stakar í heilum dögum.

Tegundir: Bleikja · Urriði · Sjóbirtingur
Staðsetning: Húnavatnssýsla
Veiðitímabil: 1. maí–4. júní
Stangir: 6 · Seldar stakar
Leyfilegt agn: Fluga

Skoða Blöndu – Vorveiði

Miðsvæðið nær yfir um tíu kílómetra kafla í Langadal, frá Eyrarenda niður að Steinastrengjum. Þar veiðist helst staðbundinn silungur, sjóbleikja og sjóbirtingur

Tegundir: Urriði · Bleikja · Sjóbirtingur · Lax
Staðsetning: Langidalur í Húnavatnssýslu
Veiðitímabil: 20. júní–5. september
Stangir: 2–4
Leyfilegt agn: Fluga

Skoða Miðsvæðið í Blöndu

Veiðisvæðið nær frá ósi Blöndu upp að klöppunum neðan við lögreglustöðina. Þar gætir flóðs og fjöru og veiðist helst sjóbleikja og sjóbirtingur sem ganga inn og út úr ósnum.

Tegundir: Sjóbleikja · Sjóbirtingur
Staðsetning: Blönduós í Húnavatnssýslu
Veiðitímabil: 1. maí–5. september
Stangir: 2
Leyfilegt agn: Fluga

Skoða Blönduós

Á silungasvæði Svartár veiðast bæði staðbundinn silungur og göngusilungur. Svæðið liggur ofan laxveiðisvæðisins og nær upp eftir Svartárdal, auk Fossár í Fossárdal.

Tegundir: Bleikja · Urriði
Staðsetning: Svartárdalur í Húnavatnssýslu
Veiðitímabil: 1. maí–30. september
Stangir: 2 · Seldar saman
Leyfilegt agn: Fluga

Skoða Svartá silungasvæði

Hofsá og Runukvísl liggja innst í Vesturdal í Skagafirði og er sjóbleikja uppistaða veiðinnar. Runukvísl er tær efri hluti árinnar og rennur um gljúfur upp að Runufossi.

Tegundir: Sjóbleikja · Stöku lax og sjóbirtingur
Staðsetning: Skagafjörður
Veiðitímabil: 15. júlí–30. september
Stangir: 3 · Seldar saman
Leyfilegt agn: Hofsá: fluga, maðkur og spún· Runukvísl: fluga
Skoða Hofsá og Runukvísl

Fjölbreytt sjóbleikjuveiði í Skagafirði á vatnasvæði Kolku. Einnig veiðast lax og sjóbirtingur. Veiðihús við Efri-Ás fylgir leyfunum.

Tegundir: Sjóbleikja · Lax · Sjóbirtingur
Staðsetning: Skagafjörður
Veiðitímabil: 20. júní–20. september
Stangir: 4
Agn: Fluga

Skoða Kolku og veiðileyfi

Bjarnarfjarðará er sjóbleikjuá um 35 km frá Hólmavík. Veiðisvæðið er um sjö kílómetrar að lengd með 25 merktum veiðistöðum og góðu aðgengi að flestum þeirra.

Tegundir: Sjóbleikja · Stöku lax
Staðsetning: Bjarnarfjörður á Ströndum
Veiðitímabil: 20. júní–20. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn

Skoða Bjarnarfjarðará á Ströndum

Goðdalsá er efri hluti Bjarnarfjarðarár á Ströndum og er bleikja uppistaða veiðinnar. Besti veiðitíminn er yfirleitt frá miðjum júlí og fram í september.

Tegundir: Bleikja
Staðsetning: Bjarnarfjörður á Ströndum
Veiðitímabil: 20. júní–20. september
Stangir: 2
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn

Skoða Goðdalsá

Árbót nær yfir austurbakka Laxár í Aðaldal, frá Bæjarklöpp að Höskuldarvík. Svæðið er einkum þekkt fyrir urriðaveiði, en þar veiðast einnig laxar og veiðihúsið Vörðuholt fylgir leyfunum.

Tegundir: Urriði · Lax
Staðsetning: Aðaldalur
Veiðitímabil: 1. apríl–20. september
Stangir: 3–4 eftir tímabili · Seldar saman
Leyfilegt agn: Fluga

Skoða Árbót – Laxá í Aðaldal

Í Köldukvísl eru staðbundnir stofnar bleikju og urriða og veiðast þar stórir fiskar af báðum tegundum. Veiðisvæðið er fjölbreytt með gljúfrum, fossum, djúpum hyljum og grunnum breiðum.

Tegundir: Bleikja · Urriði
Staðsetning: Hálendi Suðurlands
Veiðitímabil: 15. maí–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga

Skoða Köldukvísl

Tungnaá rennur tær um gamlan jökulfarveg eftir breytingar vegna virkjunarframkvæmda árið 2014. Í ánni eru staðbundnir stofnar bleikju og urriða og þar veiðast stórir fiskar af báðum tegundum.

Tegundir: Bleikja · Urriði
Staðsetning: Hálendi Suðurlands
Veiðitímabil: 15. maí–30. september
Stangir: 2–4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Tungnaá

Norðlingafljót rennur um Arnarvatnsheiði og þar veiðast bæði vænir urriðar og bleikjur. Veiðisvæðið nær frá upptökum niður að Bjarnafossi og ganga þarf að stórum hluta veiðistaðanna.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Norðlingafljót

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði

Veiðisvæðið ofan Blöndulóns nær yfir sjö ár og fjölmarga læki með urriða og bleikju. Hægt er að aka að ánum en ganga þarf meðfram þeim til að komast að veiðistöðum.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Hálendið ofan Blöndulóns
Veiðitímabil: 20. júní–30. september
Stangir: 8
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Blöndukvíslar

Geirlandsá er bergvatnsá við Kirkjubæjarklaustur þar sem sjóbirtingur er uppistaða veiðinnar. Veiðisvæðið er um 12 km langt og nær frá Görðum upp að Fosshyl við Hagafoss.

Tegundir: Sjóbirtingur · Lax · Bleikja
Staðsetning: Vestur-Skaftafellssýsla
Veiðitímabil: 1. apríl–20. október
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Geirlandsá

Vatnamót eru víðáttumikið veiðisvæði þar sem ár og lækir sameinast Skaftá sunnan við Kirkjubæjarklaustur. Sjóbirtingur er uppistaða veiðinnar og þar veiðast árlega mjög stórir fiskar.

Tegundir: Sjóbirtingur · Bleikja · Lax
Staðsetning: Vestur-Skaftafellssýsla
Veiðitímabil: 1. apríl–20. október
Stangir: 5
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Vatnamót

Fossálar og Þverárvatn eru um 15 km austan við Kirkjubæjarklaustur. Veiðisvæðið er veitt sem ein heild og er sjóbirtingur helsta uppistaða veiðinnar.

Tegundir: Sjóbirtingur
Staðsetning: Vestur-Skaftafellssýsla
Veiðitímabil: 1. júlí–20. október
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Fossála

Þriggja daga veiðipakki þar sem veitt er í Geirlandsá, Fossálum og Vatnamótum eftir fastri skiptingu. Tvær stangir eru seldar saman og gisting að Hörgslandi fylgir pakkanum.

Tegundir: Sjóbirtingur
Staðsetning: Vestur-Skaftafellssýsla
Veiðitímabil: Ágúst-Október
Stangir: 2 · Seldar saman
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Geirlandsá/Fossálar/Vatnamót – pakka

Veiðisvæðið er á austurbakka Sogsins og nær frá brúnni við Þrastalund upp að Álftavatni. Í vorveiðinni er mest veitt af bleikju, en einnig veiðast urriðar og sjóbirtingar.

Tegundir: Bleikja · Urriði · Sjóbirtingur
Staðsetning: Sog við Þrastalund
Veiðitímabil: 1. apríl–4. júní
Stangir: 2 · Seldar saman
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða vorveiði í Þrastalundi

Geldingatjörn er lítið og grunnt stöðuvatn í um 25 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Í vatninu er mikið af urriða af Þingvallavatnsstofni og fiskurinn er yfirleitt eitt til tvö pund.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Í nágrenni Reykjavíkur
Veiðitímabil: Frá því ísa leysir–30. september
Stangir: 8
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spúnn

Skoða Geldingatjörn

Sporðöldulón varð til þegar Kaldakvísl var stífluð ofan við ármót Tungnaár árið 2013. Í lóninu er bæði urriði og bleikja, allt frá smábleikju upp í fiska sem hafa náð sex pundum.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Hálendi Suðurlands
Veiðitímabil: Meðan fært er að veiðisvæðinu
Stangir: 10
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spúnn

Skoða Sporðöldulón

Í Kvíslarveitu er mikið af urriða, yfirleitt eitt til tvö pund. Vatnið er jökullitað og bestu veiðistaðirnir eru gjarnan þar sem tærir lækir renna í lónið.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Hálendi Suðurlands
Veiðitímabil: Meðan fært er að veiðisvæðinu
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spónn og beita

Skoða Kvíslarveitu

Þórisvatn liggur milli Köldukvíslar og Hraunvatna á hálendi Rangárvallasýslu. Þar veiðist urriði og eru Austurbotnar og Grasatangi meðal helstu veiðistaða.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Hálendi Rangárvallasýslu
Veiðitímabil: Meðan fært er að veiðisvæðinu
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita

Skoða Þórisvatn

Fellsendavatn er við leiðina frá Hrauneyjum að Veiðivötnum og hægt er að aka nærri vatnsbakkanum. Í vatninu veiðast stórir urriðar og er stofninum viðhaldið með árlegum seiðasleppingum.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Hálendi Suðurlands
Veiðitímabil: Meðan fært er að veiðisvæðinu
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spúnn

Skoða Fellsendavatn

Reykjavatn liggur við brún Hallmundarhrauns á Arnarvatnsheiði og þar veiðast vænir urriðar og bleikjur. Veiðileyfið gildir einnig í Reyká, sem rennur úr vatninu til Norðlingafljóts.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Reykjavatn og Reyká

Geitabergsvatn er nyrst Svínadalsvatnanna og tilheyrir vatnasvæði Laxár í Leirársveit. Þar veiðist aðallega urriði, en einnig bleikja og stöku lax og sjóbirtingur.

Tegundir: Urriði · Bleikja · Lax · Sjóbirtingur
Staðsetning: Svínadalur í Hvalfjarðarsveit
Veiðitímabil: 10. apríl–15. september
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn

Skoða Geitabergsvatn

Þórisstaðavatn liggur milli Eyrarvatns og Geitabergsvatns og tilheyrir vatnasvæði Laxár í Leirársveit. Uppistaðan í veiðinni er staðbundin bleikja og urriði, en lax og sjóbirtingur ganga einnig í vatnið.

Tegundir: Bleikja · Urriði · Lax · Sjóbirtingur
Staðsetning: Svínadalur í Hvalfjarðarsveit
Veiðitímabil: 10. apríl–15. september
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn

Skoða Þórisstaðavatn

Eyrarvatn er syðst Svínadalsvatnanna og veiðisvæðið nær yfir norðurbakka vatnsins. Mest veiðist af smábleikju, en einnig veiðast stærri bleikjur og urriðar ásamt stöku laxi og sjóbirtingi.

Tegundir: Bleikja · Urriði · Lax · Sjóbirtingur
Staðsetning: Svínadalur í Hvalfjarðarsveit
Veiðitímabil: 10. apríl–15. september
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn

Skoða Eyrarvatn

Gjafabréf