Bjarnarfjarðará á Ströndum - Fish Partner

Bjarnarfjarðará á Ströndum

Bjarnarfjarðará er sjóbleikjuá í Bjarnarfirði á Ströndum um 35 km akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið er um 7 km með 25 merktum veiðistöðum. Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði. Bjarnarfjarðará er eftirsótt sjóbleikjuá og þar veiðast stundum laxar.

Veitt er á fjórar stangir í Bjarnarfjarðará en 2 stangir í efri hlutanum sem kallast Goðdalsá.

Veiðitímabil er frá 20. júní til 20. september og veitt daglega kl: 07:00 – 13:00 og 16:00 – 22:00 (20. jún. – 20. ág.) 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00 (21. ág. – 20. sept.).

Leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spún. Veiðimenn eru beðnir um að gæta hófsemi við veiðar og ekki er ætlast til að drepnar séu fleiri en 3 bleikjur á stöng á dag.

Gott aðgengi er að flestum veiðistöðum.

Ekki er veiðihús við ána en Hótel Laugarhóll,  Svanshóll apartments og  Hvammur Cottages bjóða upp á góða gistingu við árbakkann.  Í Bjarnarfirði er sundlaug, heitur pottur, náttúrulaugar, veitingasala og einnig gott tjaldsvæði.

Veiðisvæðið nær frá ósi upp að ármótum Goðdalsár og Sunndalsár.  Efsti veiðistaður svæðisins er Berghylur og er öll veiði bönnuð ofan hans í Goðdalsá

Fjarlægð frá Reykjavík:

245km

Veiðitímabil:

20. júní til 20. september

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

4

Leyfilegt agn:

flugu, maðk og spún.

Veiðibúnaður:

#3-5 einhenda

Bestu flugurnar:

Húsnæði:

Aðgengi:

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði