Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Þingvallavatn – Villingavatnsárós
Eitt magnaðasta urriðasvæði í veröldinni
Villingavatnsárós er eitt magnaðasta urriðasvæði Þingvallavatns. Eins og nafnið gefur til kynna á Villingavatnsá ós á svæðinu og urriðinn leitar í ósinn til að melta fæðu. Svæðið getur gefið ótrúlega veiði og mikið er af stórum fiski. Einn af kostum svæðisins er að fiskurinn heldur þar til allt sumarið en hverfur ekki á dýpið, líkt og algengt er á öðrum svæðum við Þingvallavatn. Þetta gerir það að verkum að hægt er að veiða þessa stórkostlegu fiska á litlar púpur og þurrflugur þegar fram kemur í júní.
Veitt er á tvær stangir á svæðinu og aðeins er veitt á flugu. Öllum urriða skal sleppt.
Besti veiðitíminn er yfirleit á vorin og snemmsumars og svo aftur á haustin. Einning getur veiðinn verið ævintýralega á sumrin eftir miklar rigningar þegar Villingavatnsá bólgnar upp.
Við mælum með að veiðimenn byrji að veiða frá landi áður en vaðið er út þar sem urriðinn getur oft legið mjög nálægt landi.
Reglur við Villingavatnsárós
Leggið bílum í þartilgert stæði. Utanvega akstur er stranglega bannaður. Stranglega bannað er að aka sandinn niður að ós. Leggið í stæðið og labbið. Akið varlega og hægt um, fé og þá sérstaklega lömb geta verið á veginum. öll lausaganga hunda er stranglega bönnuð.
Vinsamlegast notið kamarinn.
Vinsamlegast skráið allan fisk í veiðibók við bílastæðið.
Björgunarvesti eru í gulum kassa við bílastæðið.
Ef hliðið er lokað þarf að hringja í eftirfarandi nr til að opna: 571-4545 867-7545 898-3946
Önnur veiðisvæði við Þingvallavatn og Úlfljótsvatn:
Veiðifélagar Fish Partner safna 7% Veiðikrónum við kaup á leyfi í Villingavatnsárós í vefsölu
Fjarlægð frá Reykjavík:
44km
Veiðitímabil:
15. apríl - 15. september
Meðalstærð:
8 pund
Fjöldi stanga:
2
Leyfilegt agn:
Fluga
Veiðibúnaður:
Einhenda #6-8
Bestu flugurnar:
Straumflugur,púpur og þurflugur
Húsnæði:
Ýmsir möguleikar
Aðgengi:
Fólksbílafært
Veiðileyfi
Öll verð miðast við eina stöng
Put Address Here
Vinsæl veiðisvæði
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.