Þórisstaðavatn í Svínadal - Fish Partner

Þórisstaðavatn í Svínadal

Þórisstaðavatn í Svínadal

Þórisstaðavatn er við Þórisstaði í Svínadal. Áður fyrr var vatnið kallað Glammastaðavatn en er það nafn sjaldan notað í dag. Þórisstaðavatn liggur milli Eyrarvatns og Geitabergsvatns og er hluti af vatnasvæði Laxár í Leirársveit. Lax og sjóbirtingur gengur í Þórisstaðavatn en uppistaðan af veiðinni er staðbundin bleikja og urriði.  Mest eru þetta fiskar í kringum pundið en stærri fiskar í bland. Þórisstaðavatn er 1,37 ferkílómetrar að stærð og liggur í 71 m hæð yfir sjávarmáli.  Mesta dýpt vatnsins er um 24 m.

Leiðarlýsing

Frá Reykjavík er ekið um Hvalfjarðargöng og haldið áfram á þjóðvegi 1, ekið yfir Laxá í Leirársveit, því næst yfir Leirá og hægri beygja tekin upp í Leirársveit (504 síðan 502). Frá gatnamótum er um 15 km akstur að vatninu. Einnig er gaman að aka Hvalfjörðinn (47). Sé sú leið valin er beygt til hægri af vegi 47 eftir að ekið er framhjá Ferstikluskála upp Dragaveg (520).

Veiðisvæðið

Leyfilegt er að veiða í öllu vatninu.

Veiðitími

Veiðitímabilið í vatninu hefst 10. apríl og nær til 15. september ár hvert og er nokkuð jöfn veiði út tímabilið.

Veiðitíminn 10/4-20/8 er kl. 7-22

Veiðitíminn 21/8-31/8 er kl. 7-21

Veiðitíminn 1/9-15/9 er kl. 7-20

Reglur.

  • Bannað er að veiða í ánum sem renna á milli vatnanna í Svínadal.
  • Hundar: Já.
  • Notkun báta: Já.
  • Netaveiði: Nei.
  • Agn: Fluga, maðkur og spúnn.
  • Tjalda: Ekki er leyfilegt að tjalda við vatnið en skipulagt tjaldsvæði er á Þórisstöðum við Þórisstaðavatn.
  • Veiðifélagar Fish Partner borga ekki fyrir veiðileyfi í Þórisstaðavatni.
  • Börn undir 14 ára veiða frítt í fylgd með Veiðifélögum Fish Partner.
  • Veiðileyfi gildir í öll vötnin í Svínadal, þ.e. Þórisstaðavatn, Geitabergsvatn og Eyrarvatn.
  • Má veiða 2 laxa á stöng á dag í vötnunum og hirða 1 (drepa 1 og sleppa 1).
  • Sleppa öllum laxi eftir 1. september

Veiðifélagar Fish Partner veiða frítt í Svínadalsvötnum

 

Fjarlægð frá Reykjavík:

60km

Veiðitímabil:

10. apríl - 15. september

Meðalstærð:

1-2 pund

Fjöldi stanga:

Ótakmarkað

Leyfilegt agn:

Fluga, maðkur, spúnn

Veiðibúnaður:

Einhenda #4-6

Bestu flugurnar:

Straumflugur, púpur og þurrflugur

Húsnæði:

Aðgengi:

Gott

Myndasafn

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði