Hofsá & Runukvísl - Fish Partner

Hofsá & Runukvísl

Hofsá

Hofsá liggur innst í Vesturdal í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði, um 330 km frá Reykjavík og 130 km frá Akureyri. Veiðisvæði árinnar nær yfir um 25 km og er sjógengin bleikja helsta uppistaða veiðinnar, þó einnig veiðist þar stöku lax og sjóbirtingur. Áin á upptök sín í vötnum og lækjum við Hofsjökul og rennur síðan í Vestari Jökulsá.

Hofsá er vatnsmikil á og getur verið jökullituð, einkum þar sem Fossá, sem kemur úr Hofsjökli, sameinast henni. Ofan við ármót Fossár er áin hins vegar tær á um 6 km kafla og nefnist þar Runukvísl.

Runukvísl

Nefnist áin ofan við ármót Fossár. Áin er algjör perla og náttúrufegurðin gríðarleg. Áin liðast um gljúfur og er kristal tær. Mikil sjóbleikja á það til að ganga upp í Runukvíslina og er áin kjörin fluguveiðiá. Runukvíslin endar í fossi sem nefnist Runufoss. Hægt er að aka að neðri hluta Runukvíslar á fjórhjóladrifs bíl en síðan þarf að ganga. Fjölmargir veiðistaðir eru á leiðinni upp að fossi og er áin sérstaklega skemmtilegt til sjónveiða. Í Runukvísl er eingöngu leyfð fluguveiði og ekki er heimilt að drepa fisk þar.

Veiðireglur

Veiðitímabilið stendur frá 15. júlí til 30 september. Seldar eru þrjár stangir saman frá morgni til kvölds og er veiðitími alls 12 klukkustundir á sólarhring.

Í Hofsá er heimilt að veiða á flugu, maðk og spón og má hver veiðimaður hirða 7 fiska á dagsleyfi. Í Runukvísl eru eingöngu leyfð fluguveiði og þar skal öllum fiski sleppt aftur.

 

 

 

Fjarlægð frá Reykjavík:

330 km

Veiðitímabil:

15. júlí til 30 september

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

3 - Seldar saman

Leyfilegt agn:

Hofsá:flugu, maðk og spún, Runukvísl: Fluga

Veiðibúnaður:

#5 einhenda

Bestu flugurnar:

Straumflugur, púpur og þurrflugur

Húsnæði:

Aðgengi:

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði