Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Eyrarvatn í Svínadal
Eyrarvatn í Svínadal
Eyrarvatn er syðsta vatnið í vatnaklasanum í Svínadal og er um 80 km frá Reykjavík um Hvalfjarðargöng. Vatnið er þekkt fyrir sumarbúðir KFUM í Vatnaskógi sem standa á bökkum vatnsins. Vatnið er mjög aðgengilegt og er því tilvalið fyrir fjölskyldur. Uppistaðan í veiðinni er smábleikja sem þó hefur farið stækkandi undanfarin ár en einnig veiðast þar stærri urriðar og bleikjur reglulega. Stöku laxar og sjóbirtingar sem ganga í vatnið í gegnum Laxá í Leirársveit veiðast líka á ári hverju.
Leiðarlýsing
Frá Reykjavík er ekið um Hvalfjarðargöng og haldið áfram á þjóðvegi 1, ekið yfir Laxá í Leirársveit, því næst yfir Leirá og hægri beygja tekin upp í Leirársveit (504 síðan 502). Frá gatnamótum er um 12 km akstur að vatninu. Einnig er gaman að aka Hvalfjörðinn (47). Sé sú leið valin er beygt til hægri af vegi 47 eftir að ekið er framhjá Ferstikluskála upp Dragaveg (520).
Veiðisvæðið
Veiðisvæðið er norðurbakki Eyrarvatns.
Bannað er að veiða í Laxá í Leirársveit og ánum sem renna á milli vatnanna í Svínadal.
Veiðitími
Veiðitímabilið í vatninu hefst 10. apríl og nær til 15. september ár hvert og er nokkuð jöfn veiði út tímabilið.
Veiðitíminn 10/4-20/8 er kl. 7-22
Veiðitíminn 21/8-31/8 er kl. 7-21
Veiðitíminn 1/9-15/9 er kl. 7-20
Reglur
- Bannað er að veiða í ánnum sem renna milli vatnana í Svínadal.
- Hundar: Já
- Notkun báta: Já
- Netaveiði: Nei
- Agn: Fluga, maðkur, spúnn.
- Tjalda: Ekki er leyfilegt að tjalda við vatnið en skipulagt tjaldsvæði er á Þórisstöðum við Þórisstaðavatn.
- Veiðifélagar Fish Partner borga ekki fyrir veiðileyfi í Eyrarvatni.
- Börn undir 14 ára veiða frítt í fylgd með Veiðifélögum Fish Partner.
- Veiðileyfi gildir í öll vötnin í Svínadal, þ.e. Þórisstaðavatn, Geitabergsvatn og Eyrarvatn.
- Má veiða 2 laxa á stöng á dag í vötnunum og hirða 1 (drepa 1 og sleppa 1).
- Sleppa öllum laxi eftir 1. sept.
Veiðifélagar Fish Partner veiða frítt í Svínadalsvötnum
Fjarlægð frá Reykjavík:
60km
Veiðitímabil:
10.apríl - 15. september
Meðalstærð:
1-2 pund
Fjöldi stanga:
Leyfilegt agn:
Fluga, maðkur, spún
Veiðibúnaður:
Einhenda #4-6
Bestu flugurnar:
Straumflugur, púpur og þurrflugur
Húsnæði:
Aðgengi:
Gott
Veiðileyfi
Öll verð miðast við eina stöng
Put Address Here
Vinsæl veiðisvæði
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.