Blöndukvíslar - Fish Partner Veiðifélag

Blöndukvíslar

Blöndukvíslar – Seyðisá og fleiri hálendisár

Vatnasvæðið ofan Blöndulóns samanstendur af sjö ám og ótal lækjum. Árnar eru Seyðisá, Beljandi, Þegjandi, Kúlukvísl og Stórilækur vestan Blöndu og Herjólfslækur og Haugakvísl austan Blöndu. Undanfarin ár hefur svæðið verið veitt af lokuðum hópi og lítið stundað en ljóst er af aflatölum að talsvert magn af urriða og bleikju er á svæðinu. Þetta er því einstakur kostur fyrir þá sem vilja veiða straumvatn í afskekktri náttúru hálendisins. Aðgengi að svæðinu er takmarkað á þann hátt að hægt er að komast að öllum ánum á bíl en síðan þarf að ganga meðfram þeim. Veiðimenn sem er tilbúnir að leggja á sig mikið labb eru yfirleitt þeir sem gera bestu veiðina.

Hægt er að gista á Hveravöllum eða í Áfanga.

Aðeins er heimilt að veiða á flugu. Öllum fiski skal sleppt.

Séu allar stangir seldar mun Fish Partner tengja veiðimenn saman og hvetur þá til að koma sér saman um skiptingu.

Veiðifélagar Fish Partner fá 55% afslátt af veiðileyfum í Blöndukvíslum í vefsölu

Fjarlægð frá Reykjavík:

230km

Veiðitímabil:

20. júní - 30. september

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

8

Leyfilegt agn:

Fluga

Veiðibúnaður:

Einhenda #4-6

Bestu flugurnar:

Straumflugur og púpur

Húsnæði:

Hægt að fá gistingu á Hveravöllum

Aðgengi:

4x4

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði