Þingvallavatn - Þorsteinsvík (ION) - Fish Partner

Þingvallavatn – Þorsteinsvík (ION)

Þorsteinsvíkin í Þingvallavatni hefur lengi verið þekkt meðal veiðimanna fyrir að halda óvenju miklum fjölda urriða. Ástæðan liggur meðal annars í heitavatnsuppsprettum á svæðinu sem skapa hagstæðar aðstæður fyrir fiskinn og halda lífríkinu virku allt árið.

Svæðið einkennist af langri sandfjöru. Þetta gerir veiðina bæði skemmtilega og aðgengilega, þar sem auðvelt er að ganga meðfram fjörunni og leita að fiski sem oft er mjög nálægt landi.

Veiðifyrirkomulag

Þorsteinsvík er veidd samhliða Ölfusvatnsárósi, þar sem svæðunum er skipt á milli dagshluta

  • 2 stangir eru á hvoru svæði
  • Stangir eru seldar tvær og tvær saman
  • Veiðitími skiptist þannig:
  • 08:00 – 14:00
  • 16:00 – 22:00
  • Pása er frá 14:00 – 16:00

Veiðimenn veiða hálfan dag í Þorsteinsvík og hálfan dag í Ölfusvatnsárósi.

Ef veiðimenn bóka báðar stangir á báðum svæðum er veiðitími frjáls innan dagsins, þó að hámarki 12 klukkustundir á dag.

ATH: Ekki er heimilt að veiða sunnan megin í Þorsteinsvík á laugardögum og sunnudögum en þá tilheyrir svæðið sumarbústaðaeigendum

Aðkoma

Fjarlægð frá Reykjavík:

70.km

Veiðitímabil:

1. apríl - 15. september

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

2

Leyfilegt agn:

Fluga - Öllum fiski skal sleppt

Veiðibúnaður:

#5-8 einhenda

Bestu flugurnar:

Straumflugur, púpur og þurrflugur

Húsnæði:

Aðgengi:

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði