Miðsvæðið í Blöndu - Fish Partner

Miðsvæðið í Blöndu

Miðsvæðið er nýtt silungasvæði í Blöndu. Svæðið nær frá frá og með Eyrarenda (264) niður að og með Steinastrengjum (221). Svæðið er um tíu kílómetrar að lengd og eru fjölmargir veiðistaðir á svæðinu. Áin liðast niður Langadal og eru veiðistaðir fjölbreyttir og fjölmargir. Þeir sem þekkja til vita að þarna er mikið um vænan staðbundinn silung sem og sjóbleikju og sjóbirting. Laxinn gengur þarna um og er alltaf von á að setja í lax. Veitt verður með að hámarki 4 stöngum á svæðinu. Eingöngu er um fluguveiði að ræða. Aðeins er leyfilegt að hirða einn silung á stöng á dag en öllum laxi skal undantekningalaust sleppa.

 

Boðið verður upp á flotferðir niður dalinn með leiðsögumanni en sú upplifun er eitthvað sem allir ættu að prófa.

Fjarlægð frá Reykjavík:

240kn

Veiðitímabil:

20. Júní-5.September

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

2-4

Leyfilegt agn:

Fluga - Kvóti: 1 silungar á stöng á dag. (öllum laxi skal slept)

Veiðibúnaður:

#5-7

Bestu flugurnar:

Straumflugur og púpur

Húsnæði:

Hægt að fá gistingu í Hólahvarfi

Aðgengi:

4x4

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.