Geirlandsá/Fossálar/Vatnamót pakki - Fish Partner

Geirlandsá/Fossálar/Vatnamót pakki

Um er að ræða þriggja daga holl í VatnamótumGeirlandsá og Fossálum, þar sem veiðimenn veiða heilan dag á hverju svæði fyrir sig. Hollið er með fastri róteringu, og er skipulagt sem hér segir:

Fossálar(Neðra svæði)Hálfur dagur frá klukkan 15:00
VatnamótHeill dagur
Geirlandsá (Efra svæði fh, neðra eh)Heill dagur
Fossálar(Þverárvatn, efra svæði)Hálfur dagur til klukkan 12:00

Þetta eru tveggja stanga holl með gistingu að Hörgslandi og er mönnum velkomið að tvímenna á stöng. Stangirnar eru seldar saman.

Húsið að Hörgslandi er lítið en þægilegt, með gistingu fyrir 6 manns. Tvö tveggja manna herbergi eru í húsinu ásamt svefnlofti. Í húsinu er eldhúskrókur og stofa. Gasgrill er í húsinu.

Þetta er algjörlega frábært tækifæri til þess að kynnast nokkrum af bestu sjóbirtingssvæðum landsins á besta tíma. Svæðin eru gríðarlega fjölbreytt og bjóða upp á svo til allar tegundir fluguveiða.

Tekið skal fram að eingöngu er leyfð veiði á flugu(með flugustöng) og skal öllum fiski sleppt, skilyrðislaust.

Bóka leyfi

Fjarlægð frá Reykjavík:

Veiðitímabil:

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

Leyfilegt agn:

Bara fluga - Veiða/Sleppa

Veiðibúnaður:

Bestu flugurnar:

Straumflugur og púpur

Húsnæði:

Aðgengi:

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.