Um er að ræða þriggja daga holl í Vatnamótum, Geirlandsá og Fossálum, þar sem veiðimenn veiða heilan dag á hverju svæði fyrir sig. Hollið er með fastri róteringu, og er skipulagt sem hér segir:
Fossálar(Neðra svæði) | Hálfur dagur frá klukkan 15:00 |
Vatnamót | Heill dagur |
Geirlandsá (Efra svæði fh, neðra eh) | Heill dagur |
Fossálar(Þverárvatn, efra svæði) | Hálfur dagur til klukkan 12:00 |
Þetta eru tveggja stanga holl með gistingu að Hörgslandi og er mönnum velkomið að tvímenna á stöng. Stangirnar eru seldar saman.
Húsið að Hörgslandi er lítið en þægilegt, með gistingu fyrir 6 manns. Tvö tveggja manna herbergi eru í húsinu ásamt svefnlofti. Í húsinu er eldhúskrókur og stofa. Gasgrill er í húsinu.
Þetta er algjörlega frábært tækifæri til þess að kynnast nokkrum af bestu sjóbirtingssvæðum landsins á besta tíma. Svæðin eru gríðarlega fjölbreytt og bjóða upp á svo til allar tegundir fluguveiða.
Tekið skal fram að eingöngu er leyfð veiði á flugu(með flugustöng) og skal öllum fiski sleppt, skilyrðislaust.