Fellsendavatn - Fish Partner Veiðifélag

Fellsendavatn

Fellsendavatn er í um 170 km fjarlægð frá Reykjavík og í aðeins 19 km fjarlægð frá Hálendismiðstöðinni Hrauneyjum. Þetta er fyrsta vatnið sem komið er að þegar keyrt er til Veiðivatna frá Hrauneyjum, en í vatnið var sleppt urriðaseiðum sem hafa fengið að dafna. Aðgengi að vatninu er gott og hægt að keyra nánast alveg að bakkanum. Þó skal fara varlega á smærri bílum að festa sig ekki í sandinum. Helstu veiðistaðir eru við ströndina að norðan, en hægt er að ganga inn með vatninu að austan og vestan og getur það gefið góða veiði líka.
Leyfilegt agn í vatninu er fluga, maðkur og spúnn. Daglegur veiðitími er frjáls en þó ekki lengur en 12 klukkustundir á dag.
Sá litli gróður sem er í kringum vatnið er mjög viðkvæmur og biðjum við veiðimenn að ganga vel um náttúruna. Á hverju sumri er mikið magn urriðaseiða sleppt í vatnið til að viðhalda stofninum.

Í Fellsendavatni leynast stórir urriðar en veiðin getur verið sýnd en ekki gefin. Þeir sem veiða á flugu hafa yfirleitt gert bestu veiðina í miklum vindi eða seint á kvöldin og nóttinni. Veiðin getur verið mjög erfið í stillu og góðu veðri þegar urriðinn virðist halda sig á dýpi fjær bökkunum.

Veiðifélagar veiða frítt í Fellsendavatni

Fjarlægð frá Reykjavík:

170km

Veiðitímabil:

Meðan fært er að veiðisvæðinu

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

Leyfilegt agn:

Fluga, spúnn, beita

Veiðibúnaður:

Einhenda #4-7, Kaststangir

Bestu flugurnar:

Straumflugur, púpur og þurrflugur

Húsnæði:

Ýmsir möguleikar

Aðgengi:

4x4

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði