Þingvallavatn – Ölfusvatnsárós (ION) - Fish Partner

Þingvallavatn – Ölfusvatnsárós (ION)

Við Ölfusvatnsárós rennur Ölfusvatnsá út í Þingvallavatn og ber með sér næringarríkt vatn og strauma sem skapa mjög góðar aðstæður fyrir fisk. Þar safnast bæði bleikja og urriði gjarnan í töluverðum mæli yfir veiðitímann og svæðið hefur lengi verið þekkt sem einn áhugaverðasti veiðistaðurinn á þessum hluta vatnsins.

Straumar og dýptarbreytingar við árósinn mynda náttúruleg ætissvæði og felustaði fyrir stóran urriða, sem nýtir sér aðstæður til að liggja í leyni og ráðast á æti sem berst með straumnum. Hér gefst oft tækifæri til að sjá fisk og kasta markvisst á hann, sem gerir veiðina bæði spennandi og krefjandi.

Ströndin er löng og fisk er að finna víða meðfram henni, en bestu svæðin eru jafnan þar sem áin rennur út í vatnið.


Veiðifyrirkomulag

Ölfusvatnsárós er veiddur samhliða Þorsteinsvík, þar sem veiðimenn skipta deginum á milli svæðanna.

  • 2 stangir eru á hvoru svæði

  • Stangir eru seldar saman tvær og tvær

  • Veiðimenn veiða hálfan dag í Ölfusvatnsárósi og hálfan dag í Þorsteinsvík

Veiðitími skiptist þannig:

  • 08:00 – 14:00

  • 16:00 – 22:00

Pása er frá 14:00 – 16:00.
Ef veiðimenn bóka báðar stangir á báðum svæðum er veiðitími frjáls innan dagsins, þó að hámarki 12 klukkustundir á dag.

ATH: Ekki er heimilt að veiða sunnan megin í Þorsteinsvík á laugardögum og sunnudögum en þá tilheyrir svæðið sumarbústaðaeigendum


Veiðiráð

Gott er að dreifa veiðinni og hvíla ákveðin svæði með því að prófa mismunandi hluta strandarinnar. Urriðinn getur verið viðkvæmur fyrir álagi og oft borgar sig að færa sig reglulega.

Einnig er ráðlegt að vaða ekki of langt út, þar sem fiskurinn gengur oft nær landi en margir halda.

Veiði er eingöngu með flugu og öllum fisk skal sleppt aftur.

Athugið að veiðar í sjálfri Ölfusvatnsá eru ekki leyfðar.

Fjarlægð frá Reykjavík:

70.km

Veiðitímabil:

1. apríl - 15. september

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

2

Leyfilegt agn:

Fluga - Öllum fiski skal sleppt

Veiðibúnaður:

#5-8 einhenda

Bestu flugurnar:

Straumflugur, púpur og þurrflugur

Húsnæði:

Aðgengi:

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði