Silungsveiði - Fish Partner Veiðifélag - Veiðileyfi um land allt

Silungsveiði

Við hjá Fish Partner bjóðum upp á mikið úrval veiðisvæða með urriða og bleikju. Silungsveiði er okkar sérsvið og þreytumst við aldrei á því að kanna nýjar veiðilendur og kynna ný svæði fyrir veiðimönnum. Þau svæði sem við bjóðum upp á eru rjóminn af því sem við höfum uppgötvað.

Í fyrsta sinn verður boðið upp á vorveiði í Blöndu og gefst veiðimönnum einstakt tækifæri til að upplifa fjölbreytta og spennandi veiði í þessari stórbrotnu á.
Skemmtilegt veiðisvæði þar sem finna má bæði bleikju og urriða.
Miðsvæðið er nýtt silungasvæði í Blöndu. Svæðið nær frá og með Eyrarenda (264) niður að og með Steinastrengjum (221).
Hér er um að ræða silungasvæði sem opnar í maí. Mestar líkur eru á því að fá sjóbleikjur og sjóbirtinga sem flækjast inn og út á fallaskiptum.
Um er að ræða þriggja daga holl í Vatnamótum, Geirlandsá og Fossálum þar sem veiðimenn veiða heilan dag á hverju svæði fyrir sig.
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatnsárós er eitt magnaðasta urriðasvæði Þingvallavatns. Eins og nafnið gefur til kynna á Villingavatnsá ós á svæðinu og urriðinn leitar í ósinn til að melta fæðu
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.
Kaldárhöfði er syðsta veiðisvæðið í Þingvallavatni og nyrsta svæðið í Úlfljótsvatni.
Fossálar og Þverárvatn eru í Skaftárhreppi í V-Skaftafellssýslu um 15km austan við Kirkjubæjarklaustur.
Vatnamótin eru eitt gjöfulasta sjóbirtingssvæði landsins
Ein fallegasta sjóbirtingsá landsins
Kaldakvísl hefur fram til þessa verið leynd perla á hálendinu. Áin geymir ótrúlegan bleikjustofn og urriða
Sjónveiði í kristaltærri hálendisá – Tungnaá er af stofni til jökulá en hefur verið tær síðan árið 2014 vegna virkjunarframkvæmda
Um er að ræða austurbakka Laxár í Aðaldal, frá Bæjarklöpp að og með Höskuldarvík. Árbót er einna þekktust í dag fyrir góða urriðaveiði
Norðlingafljót á upptök sín norðan Langjökuls og rennur þaðan um 70 km til vesturs í Hvítá. Mikil náttúrufegurð er við fljótið og telja margir veiðimenn það vera eina fegurstu veiðiá landsins.
Vatnasvæðið ofan Blöndulóns samanstendur af sjö ám og ótal lækjum.
Þrastalunda svæðið í Sogi er á Austurbakkanum og nær frá Álftavatni niður að brúnni yfir Sogið hjá Þrastalundi. Í vorveiðinni er bleikjan aðal veiðin en sjóbirtingar, staðbundir urriðar og hoplaxar veiðast líka.
Gjöfult veiðivatn steinsnar frá Reykjavík – Geldingatjörn er lítið en gjöfult stöðuvatn í aðeins 25 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Sporðöldulón myndaðist í nóvember 2013 þegar stífla var reist neðst í farvegi Köldukvíslar, ofan við ármót Tungnaár
Kvíslarveita eða Kvíslavatn varð til á árunum 1980 – 1984
Þórisvatn er stærsta stöðuvatn Íslands, um 86 ferkílómetrar. Það liggur milli Köldukvíslar og Hraunvatna á hálendi Rangárvallasýslu.
Fellsendavatn er í um 170 km fjarlægð frá Reykjavík og í aðeins 19 km fjarlægð frá Hálendismiðstöðinni Hrauneyjum
Reykjavatn er á Arnarvatnsheiði norðan Eiríksjökluls
Geitabergsvatn er nyrst Svínadals vatnanna. Uppistaðan í veiðinni er bleikja og urriða en einnig veiðist stöku lax og sjóbirtingur.
Þórisstaðavatn er stæðst Svínadalsvatnanna. Uppistaðan í veiðinni er bleikja og urriði en einnig veiðist stöku lax og sjóbirtingur.
Eyrarvatn er gjöfult veiðivatn í Svínadal

Gjafabréf