Laus veiðileyfi í ágúst - Fish Partner

Laus veiðileyfi í ágúst

Ágúst er kominn í gang og framundan er einn fjölbreyttasti tími veiðisumarsins!

Laxveiðin hefur verið hörku góð á köflum, Blanda verið að gefa vel og stórlaxatíminn er framundan í Aðaldalnum og rigningar síðustu daga ættu að hjálpa vel til á þeim svæðum sem hafa verið vatnslítil.

Sjóbirtingurinn er farinn að mæta, besti tíminn í sjóbleikjuna er kominn í gang og síðsumarsveiðin eftir urriða og bleikju tekur við.

Við eigum enn laus veiðileyfi á fjölmörgum svæðum í ágúst, allt frá stökum stöngum og dagsleyfum upp í heilu hollin með gistingu.

Laxveiði

Blanda – svæði 1, 2 og 3

Það hefur verið hörku laxveiði í Blöndu undanfarið og við eigum stakar stangir lausar frá 15. ágúst.

Eins og staðan er núna stefnir ekki í yfirfall á næstunni, sem eru góðar fréttir fyrir veiðimenn á Blöndu.

Svæði 1: 45.000–88.000 kr. stöngin
Svæði 2: 34.900 kr. stöngin
Svæði 3: 49.900 kr. stöngin

Stakar stangir án húss.

Blanda – svæði 4

Það hefur verið vatnslítið á svæði 4 í sumar en loksins er komin rigning. Með auknu vatni ætti fiskurinn að fara að strauja upp ána og spennandi tími framundan.

Svæði 4 er 3 stanga svæði og hollin eru seld með húsi.

Þrastalundur – Sog

Skemmtileg lax- og bleikjuveiði í stuttri akstursfjarlægð frá Reykjavík.

Tvær stangir eru seldar saman og því tilvalið fyrir tvo veiðifélaga sem vilja skella sér í dagsferð.

Verð: 19.900 kr. stöngin.

Árbót – Laxá í Aðaldal

Stórlaxatíminn í Aðaldalnum er að fara í gang!

Árbót er 3 stanga svæði í Laxá í Aðaldal og fylgir hús með hollinu. Spennandi kostur fyrir þá sem vilja freista þess að setja í einn af stóru löxunum sem Aðaldalurinn er þekktur fyrir.

Svartá

Það eru aðeins örfá holl eftir í september í Svartá.

Svartá er 4 stanga á og leyfin eru seld í tveggja daga hollum með húsi.

Silungsveiði

Blönduós – Blanda svæði 0

Flott sjóbirtingsveiði þar sem Blanda rennur til sjávar við Blönduós.

Tvær stangir eru seldar saman.

Verð: 15.000 kr. stöngin.

Blöndukvíslar

Hálendisveiði eftir urriða og bleikju í fallegu umhverfi.

Verð: 8.500 kr. stöngin.

Geirlandsá

Birtingurinn er mættur!

Stakar stangir eru í boði til 15. ágúst og síðan eigum við örfá laus holl undir lok mánaðarins.

Stakar stangir: 24.900 kr. stöngin.

Heilu hollin eru fyrir 4 stangir með húsi.

Goðdalsá og Bjarnarfjarðará

Besti tíminn í sjóbleikjuveiðinni er kominn í gang.

Frábær kostur fyrir þá sem vilja komast í skemmtilega sjóbleikjuveiði síðsumars.

Verð: 15.000 kr. stöngin.

Hofsá & Runukvísl

Sjóbleikjan er mætt og spennandi vikur framundan.

Verð: 20.000 kr. stöngin.

Kolka

Það hefur verið mokveiði í Kolku undanfarið!

Við eigum laus holl bæði í ágúst og september. Kolka er 4 stanga svæði og hollunum fylgir nýuppfært veiðihús.

Norðlingafljót

Hálendisveiði í einstaklega fallegu og afskekktu umhverfi.

Verð: 24.900 kr. stöngin.

Vatnamót

Við eigum enn laus holl í Vatnamótum í ágúst.

Vatnamót eru eitt þekktasta sjóbirtingssvæði landsins og óhætt að segja að svæðið sé í hópi bestu sjóbirtingssvæða í heimi.

Hollin eru fyrir 5 stangir með húsi.

Arnarvatnsheiði

Við eigum laus hús á Arnarvatnsheiði í ágúst.

Heiðin býður upp á ótrúlega fjölbreytta urriða- og bleikjuveiði og frábæran möguleika fyrir þá sem vilja eyða nokkrum dögum við veiðar á hálendinu.

Þingvallavatn

Stóru urriðarnir í Þingvallavatni fara að láta meira á sér kræla aftur þegar líður á ágúst.

Við eigum enn laus leyfi á nokkrum af okkar svæðum við vatnið og síðsumarið getur boðið upp á hörku veiði.


Það er því af nógu að taka í ágúst, hvort sem menn vilja eltast við lax, sjóbirting, sjóbleikju eða urriða.

Öll laus leyfi má finna í vefsölunni okkar

Vinsæl veiðisvæði

Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.