Blanda svæði 1 - Fish Partner

Blanda svæði 1

Blanda er ein af þessum stóru þegar kemur að laxveiðiám Íslandi og er jafnframt í hópi þeirra fremstu og bestu.  Blanda er þekkt fyrir miklar aflahrotur en veiðin hefur sveiflast mikið á síðastliðnum áratugum og hefur veiðin farið upp í hæstu hæðir sum ár. Laxinn í Blöndu er snemmgenginn stórlaxastofn sem byrjar að ganga í maí, og svo verða göngurnar kröftugri þegar kemur fram í júlí.

Þegar líða tekur á sumarið er það nánast árviss viðburður að Blöndulón fyllist og jökulvatn flæðir yfir stífluna, þá er talað um að Blanda sé komin á yfirfall. Það koma þó ár sem að þetta gerist ekki og þá er hægt að veiða ána út tímabilið. Einnig getur það gerst að vélar séu sérstaklega keyrðar í Blönduvirkjun og þá getur áin gruggast. Fish Partner getur ekki tekið ábyrgð á ástandi árinnar þegar menn eru við veiðar.

Blanda Sv 1
Blanda Sv 2
Blanda Sv 3
Blanda Sv 4

Svæði 1

Svæði 1 hefur oft verið með aflahæstu laxveiðisvæðum landsins. Veiðisvæðið er fremur stutt, um 3km frá Ennisholu niður að lögreglustöð, en getur geymt gríðarlegt magn af laxi, og getur veiðin verið ævintýraleg á köflum. Svæðið er veitt með fjórum stöngum, tveimur stöngum á hvorum bakka.

Aðgengi og staðhættir

Ekið er upp á svæði eitt frá Blönduósi að vestanverðu við Blöndu. Ekið upp að og í gegnum hesthúsabyggð þar sem vegurinn liggur að Blöndu og endar á bílastæði. Þaðan er örstuttur gangur að ánni. (Vinsamlegast akið með gát í gegnum hesthúsahverfið)

Þeir sem veiða á austurbakkanum aka sömu leið og komast þeir yfir á göngubrú, beint neðan við bílastæði.

Blanda er varasöm, vatnsmikil og straumhörð. Við hvetjum veiðimenn til að fara með gát og nota vaðstaf og björgunarvesti við veiðar.

Veiðhús

Hólahvarf er glæsilegt veiðihús með fullri þjónustu, topp aðbúnaði og öllum nútíma þægindum.

Í húsinu eru tólf tveggja manna herbergi með sér baðherbergi. Nýr stór pottur er utan við húsið og gufubað inni í húsinu.

Setustofan er rúmgóð með útsýni yfir ána og dalinn.

Fjarlægð frá Reykjavík:

240km

Veiðitímabil:

5. júní - 5. september

Meðalstærð:

8 pund

Fjöldi stanga:

4 (tvær á hvorum bakka)

Leyfilegt agn:

Fluga með flugustöng

Veiðibúnaður:

Einhenda/tvíhenda #8-10

Bestu flugurnar:

Gárutúpur, Frances, Sunray Shadow, Snælda o.fl.

Húsnæði:

Veiðihúsið Hólahvarf

Aðgengi:

Fólksbílafært

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði