Góð bleikjuveiði fyrir norðan - Fish Partner

Góð bleikjuveiði fyrir norðan

Veiðin fyrir norðan hefur verið góð að undanförnu, bæði í Runukvísl/Hofsá og á Kolkusvæðinu. Töluvert magn af fiski er komið upp í árnar og enn er fiskur að ganga.

Við höfum fengið góðar fréttir frá báðum svæðum og margar fallegar bleikjur hafa komið á land og í Kolku hafa einnig verið að veiðast lax og sjóbirtingar.

Bleikjan í Runukvísl

Bleikjan hefur verið að ganga upp í Runukvísl í sumar og talsvert af fiski er komið á svæðið. Veiðin hefur verið fín síðustu daga og enn er fiskur að bætast við.

Leiðsögumaðurinn okkar, Robert Hanson, tók myndirnar að neðan. Þar má sjá bæði fallega fiska og það sérstaka landslag sem umlykur Hofsá og Runukvísl.

Svæðið hentar vel þeim sem vilja leggja aðeins á sig, ganga inn í náttúruna og njóta veiðinnar fjarri amstri dagsins.


Kolka

Fjölbreytt veiði í Kolku

Veiðin á Kolkusvæðinu hefur einnig verið mjög góð að undanförnu. Þar er bleikjan mest áberandi, en laxar og sjóbirtingar hafa einnig verið að veiðast.

Kolka, Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá bjóða upp á fjölbreytta veiði og skemmtilega möguleika á fleiri en einni tegund. Myndirnar í seinna myndasafninu eru úr veiðinni þar undanfarið og gefa góða mynd af því sem svæðið hefur uppá að bjóða.

Laus leyfi má sjá í vefsölunni

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði