Bókanir fyrir 2027 komnar á fullt - Fish Partner

Bókanir fyrir 2027 komnar á fullt

Við erum byrjaðir að fylla vefsöluna af veiðileyfum fyrir sumarið 2027! Nú þegar er hægt að tryggja sér daga á fjölbreyttum svæðum, hvort sem hugurinn leitar á hálendið, að Þingvallavatni eða í árnar.

Eftirfarandi svæði eru komin í vefsöluna okkar:

Endurbókunum að ljúka

Endurbókanir í Blöndu, Svartá og Geirlandsá, ásamt skálunum á Arnarvatnsheiði, eru á lokametrunum. Opnað verður fyrir almennar bókanir á næstu dögum.

Ef þú átt eftir að staðfesta endurbókun og vilt halda þínum dögum hvetjum við þig til að hafa samband sem fyrst.

Veiðifélagar, munið eftir afslættinum

Veiðifélagar Fish Partner njóta afsláttar af veiðileyfum á völdum svæðum. Munið að skrá ykkur inn í vefsöluna áður en þið bókið svo félagskjörin ykkar skili sér.

Ertu ekki enn Veiðifélagi? Kynntu þér félagið og fríðindin hér.

Veiðifélagar veiða frítt á fjölda veiðisvæða.

Finnurðu ekki svæðið þitt?

Við höldum áfram að bæta svæðum og lausum dögum í vefsöluna á næstu dögum og vikum. Þótt svæði sé ekki enn komið þar inn er hægt að senda okkur bókunarfyrirspurn í gegnum formið hér fyrir neðan.

Segðu okkur hvaða svæði og dagsetningar þú hefur áhuga á og við aðstoðum þig við að skipuleggja næstu veiðiferð.

Við hlökkum til veiðisumarsins 2027 með ykkur!


Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði