Veiðisvæði Þrastalundar í Sog er á austur bakkanum og nær frá brú upp að Álftavatni. Svæðið er fagurt og gaman er að sveifla tvíhendu á breiðurnar. Einn skemmtilegasti veiðistaður Sogsins er á þrastalundi og heitir Kúagil. Þar liggur alltaf lax þegar hann er genginn. Lax getur legið víða á svæðinu og eru helstu legu staðir frá Kúgagili og niður að brú en menn geta einnig fundið laxa ofar á svæðinu og þá sérstaklega á göngutíma. Ofan kúgagils og upp að Álftavatni eru fjölmargir staðir sem geyma bolta bleikjur. Eingöngu er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt.
Best er að veiða svæðið með tvíhendu þar sem löng köst geta verið nauðsynleg.
Veiðibókin og björgunarvesti eru staðsett á göngustígnum í gulum kassa.
Tvær stangir eru í Þrastalundi og þær seldar saman. Eingöngu er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt.