Veiði Fréttir - Page 7 of 15 - Fish Partner Veiðifélag
Ófærur bleikja í ófærufoss

Bætist í vefsöluna – Ásgarður og Fossálar

Það heldur áfram að bætast í vefsöluna og nú er Ásgarður-Skaftá og vor veiðin í Fossálum komin inn. Þau svæði sem eru komin í vefsöluna eru: Sjóbirtingsveiði: Vatnamót vorveiðin Fossálar vorveiðin Grenlækur sv4 Ásgarður-Skaftá Silungsveiði: Blöndukvíslar Ófærur Þrastalundur vorveiðin Kvíslaveita Sporðöldulón Þórisvatn Laxveiði: Þrastalundur

Bætist í vefsöluna – Ásgarður og Fossálar Read More »

fossálar sjóbirtingur

Nýtt veiðisvæði bætist við flóruna hjá Fish Partner.

Fish Partner hefur gert samning um veiðirétt í Fossálum og einnig efri hluta árinnar sem nefnist Þverá og síðar Öðulbrúará. Veiðisvæðið mun því taka stakkaskiptum og stækka gríðarlega en efra svæðið er geysi fagurt og er hluti svæðisins á skrá UNESCO. Það svæði hefur verið algerlega lokað almenningi og eingöngu nýtt af landeigendum í áraraðir.

Nýtt veiðisvæði bætist við flóruna hjá Fish Partner. Read More »

Þingvalla urriði

Vefsalan í loftið!

Ný árið er liðið, og því ekki úr vegi að setja vefsöluna fyrir 2022 í loftið. Það eru ekki nema þrír örstuttir mánuðir í að veislan byrji og því löngu tímabært að byrja að skipuleggja. Svæðin sem eru komin í vefsöluna eru eftirfarandi: Vatnamót Vor Blöndukvíslar Nyrðri og Syðri Ófærur Þrastalundur Vor Þrastalundur Lax Sporðöldulón

Vefsalan í loftið! Read More »

Dómadalsvatn urriði

Veiðifélaga svæði 2022

Sumarið 2022 munu að minsta kosti þrjú ný veiðisvæði koma inn í Veiðifélaga. Þau eru Efri-Brú í Úlfljótsvatni, Stæðavötn og Vaðall við Breiðuvík. Efri-Brú er fornfrægt veiðisvæði í Úlfljótsvatni þekkt fyrir stórar bleikjur. Stæðavötn og Vaðall eru bæði staðsett á sunnaverðum Vestfjörðum, skammt frá Breiðuvík. Að sjálfsögðu munu Veiðifélagar áfram njóta aragrúa af afsláttum og sérkjörum

Veiðifélaga svæði 2022 Read More »

Bleikja úr úlfljótsvatn

Efri-Brú í Úlfljótsvatni inn í Veiðifélaga

Efri-Brú í Úlfljótsvatni verður inni í Veiðifélaga áskrift sumarið 2022. Þó takmarkast stangarfjöldi á svæðinu við 5 stangir, svo nóg pláss verður fyrir veiðimenn. Ólíkt öðrum Veiðifélaga svæðum þurfa félagar því að bóka stöng í vefsöluni fyrirfram vegna þessara stangartakmarkana. Svæðið er stórt og fjölbreytilegt og leyfðar eru fimm stangir. Svæðið er í suðausturhluta vatnsins

Efri-Brú í Úlfljótsvatni inn í Veiðifélaga Read More »

Vatnamót sjóbirtingur

Vatnamót í Skaftafellssýslu til Fish Partner

Vatnamótin eru eitt allra gjöfulasta sjóbirtingssvæði Íslands og það er okkur sönn ánægja að bjóða þau velkomin í ört stækkandi flóru félagsins. Um er að ræða hin frægu Vatnamót sem eru ármót Skaftár, Breiðbalakvíslar, Hörgsár og Fossála ásamt hinum ýmsu lækjum. Árlega veiðast um 1500 sjóbirtingar í Vatnamótum. Til að stuðla enn frekar að dafnandi

Vatnamót í Skaftafellssýslu til Fish Partner Read More »