Fish Partner hefur gert samning um veiðirétt í Fossálum og einnig efri hluta árinnar sem nefnist Þverá og síðar Öðulbrúará. Veiðisvæðið mun því taka stakkaskiptum og stækka gríðarlega en efra svæðið er geysi fagurt og er hluti svæðisins á skrá UNESCO. Það svæði hefur verið algerlega lokað almenningi og eingöngu nýtt af landeigendum í áraraðir. Til að krydda þetta en frekar þá er neðsti hluti Fossálana einnig inni í veiðisvæðinu (Ekki Vatnamót) þannig að áin er orðin ein heild en ekki bútaskipt eins og áður var. Það verður eingöngu veitt á flugu hér eftir og öllum fiski sleppt. Húsakostur mun verða til mikilla fyrirmynda en gamli bærinn þverá verður tekinn í gegn og klassaður upp í gæða gistingu. Húsið verður ekki klárt fyrir vorið þannig að lítið hús í Hörgslandi mun fylgja leyfum í vorveiðinni. Þetta er kærkomin viðbót fyrir fyrir veiðimenn og spennandi verkefni þar sem veiða sleppa er nú einnig í Vatnamótum. Hægt er að nálgast veiðileyfi í vorveiðina hér:
Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.
Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst







