Vatnamót í Skaftafellssýslu til Fish Partner - Fish Partner
Vatnamót sjóbirtingur

Vatnamót í Skaftafellssýslu til Fish Partner

Vatnamótin eru eitt allra gjöfulasta sjóbirtingssvæði Íslands og það er okkur sönn ánægja að bjóða þau velkomin í ört stækkandi flóru félagsins. Um er að ræða hin frægu Vatnamót sem eru ármót Skaftár, Breiðbalakvíslar, Hörgsár og Fossála ásamt hinum ýmsu lækjum. Árlega veiðast um 1500 sjóbirtingar í Vatnamótum. Til að stuðla enn frekar að dafnandi sjóbirtingsveiði hefur reglum svæðisins verið breytt á þann veg að eingöngu er leyfð veiði á flugu og skal öllum fiski sleppt. Við erum gríðarlega spennt að sjá árangurinn af þessu breytta fyrirkomulagi og höfum mikla trú á að það muni efla þetta frábæra svæði til mikilla muna. Veiðivarsla verður efld á svæðinu til þess að sjá til þess að þessum nýju reglum verði framfylgt. Þeim veiðimönnum og konum sem átt hafa holl í Vatnamótum verður að sjálfsögðu gefinn kostur á að halda þeim gegn því að fylgja þessu nýja fyrirkomulagi.

Vinsæl veiðisvæði

Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.
Síðsumarsá í stóbrotinni náttúru – Þessi tveggja stanga perla og rennur í gríðarlega fallegu, skógi vöxnu, umhverfi í Þjórsárdal.