Við erum byrjaðir að fylla vefsöluna af veiðileyfum fyrir sumarið 2027! Nú þegar er hægt að tryggja sér daga á fjölbreyttum svæðum, hvort sem hugurinn leitar á hálendið, að Þingvallavatni eða í árnar.
Eftirfarandi svæði eru komin í vefsöluna okkar:
- Arnarvatnsheiði
- Fellsendavatn
- Kolka
- Kvíslaveita
- Norðlingafljót
- Reykjavatn og Reyká
- Sporðöldulón
- Vatnamót
- Þingvallavatn – Kárastaðir
- Þingvallavatn – Villingavatnsárós
- Þórisvatn
Endurbókunum að ljúka
Endurbókanir í Blöndu, Svartá og Geirlandsá, ásamt skálunum á Arnarvatnsheiði, eru á lokametrunum. Opnað verður fyrir almennar bókanir á næstu dögum.
Ef þú átt eftir að staðfesta endurbókun og vilt halda þínum dögum hvetjum við þig til að hafa samband sem fyrst.
Veiðifélagar, munið eftir afslættinum
Veiðifélagar Fish Partner njóta afsláttar af veiðileyfum á völdum svæðum. Munið að skrá ykkur inn í vefsöluna áður en þið bókið svo félagskjörin ykkar skili sér.
Ertu ekki enn Veiðifélagi? Kynntu þér félagið og fríðindin hér.
Veiðifélagar veiða frítt á fjölda veiðisvæða.
Finnurðu ekki svæðið þitt?
Við höldum áfram að bæta svæðum og lausum dögum í vefsöluna á næstu dögum og vikum. Þótt svæði sé ekki enn komið þar inn er hægt að senda okkur bókunarfyrirspurn í gegnum formið hér fyrir neðan.
Segðu okkur hvaða svæði og dagsetningar þú hefur áhuga á og við aðstoðum þig við að skipuleggja næstu veiðiferð.
Við hlökkum til veiðisumarsins 2027 með ykkur!

