Vorum að bæta fleiri svæðum í vefsöluna.
Geirlandsá er ein þekktasta og aflahæsta sjóbirtingsá landsins, að mati margra ein sú besta í heimi. Nú er eitt laust holl á besta veiðitíma í apríl, auk lausra holla í maí og ágúst. Einnig eru í boði stakar stangir án húss í júní og júlí, fyrir þá sem vilja sveigjanleika í veiðinni.
Norðlingafljót er einstaklega falleg á Arnarvatnsheiði, þekkt fyrir stórbrotið landslag og einstaka hálendisupplifun. Svæðið hentar veiðimönnum sem sækjast eftir ró, víðáttu og óspilltri náttúru.
Laus leyfi eru nú bókanleg í vefsölu, fyrstir koma, fyrstir fá.
Svæði sem voru þegar komin í vefsölu
- Vatnamót
- Arnarvatnsheiði
- Húsin á Arnarvatnsheiði
- Þrastalundur
- Þrastalundur – vorveiði
- Árbót
- Kárastaðir
- Fellsendavatn
- Kvíslaveitur
- Sporðöldulón
- Þórisvatn
Veiðifélagar Fish Partner
Veiðifélagar njóta sérstakra kjara:
- Árskorts í fjölda vatna um land allt
- Afslátta af veiðileyfum
- Ársgjald aðeins 7.900 kr
Finnurðu ekki veiði í vefsölunni?
Ef veiði sem þú ert að leita að er ekki enn komin í vefsölu, er hægt að senda fyrirspurn á:
info@fishpartner.com

