Sindri Hlíðar Jónsson, Author at Fish Partner - Page 6 of 9

Sindri Hlíðar Jónsson

fossálar sjóbirtingur

Nýtt veiðisvæði bætist við flóruna hjá Fish Partner.

Fish Partner hefur gert samning um veiðirétt í Fossálum og einnig efri hluta árinnar sem nefnist Þverá og síðar Öðulbrúará. Veiðisvæðið mun því taka stakkaskiptum og stækka gríðarlega en efra svæðið er geysi fagurt og er hluti svæðisins á skrá UNESCO. Það svæði hefur verið algerlega lokað almenningi og eingöngu nýtt af landeigendum í áraraðir. […]

Nýtt veiðisvæði bætist við flóruna hjá Fish Partner. Read More »

Dómadalsvatn urriði

Veiðifélaga svæði 2022

Sumarið 2022 munu að minsta kosti þrjú ný veiðisvæði koma inn í Veiðifélaga. Þau eru Efri-Brú í Úlfljótsvatni, Stæðavötn og Vaðall við Breiðuvík. Efri-Brú er fornfrægt veiðisvæði í Úlfljótsvatni þekkt fyrir stórar bleikjur. Stæðavötn og Vaðall eru bæði staðsett á sunnaverðum Vestfjörðum, skammt frá Breiðuvík. Að sjálfsögðu munu Veiðifélagar áfram njóta aragrúa af afsláttum og sérkjörum

Veiðifélaga svæði 2022 Read More »

Bleikja úr úlfljótsvatn

Efri-Brú í Úlfljótsvatni inn í Veiðifélaga

Efri-Brú í Úlfljótsvatni verður inni í Veiðifélaga áskrift sumarið 2022. Þó takmarkast stangarfjöldi á svæðinu við 5 stangir, svo nóg pláss verður fyrir veiðimenn. Ólíkt öðrum Veiðifélaga svæðum þurfa félagar því að bóka stöng í vefsöluni fyrirfram vegna þessara stangartakmarkana. Svæðið er stórt og fjölbreytilegt og leyfðar eru fimm stangir. Svæðið er í suðausturhluta vatnsins

Efri-Brú í Úlfljótsvatni inn í Veiðifélaga Read More »

Vatnamót sjóbirtingur

Vatnamót í Skaftafellssýslu til Fish Partner

Vatnamótin eru eitt allra gjöfulasta sjóbirtingssvæði Íslands og það er okkur sönn ánægja að bjóða þau velkomin í ört stækkandi flóru félagsins. Um er að ræða hin frægu Vatnamót sem eru ármót Skaftár, Breiðbalakvíslar, Hörgsár og Fossála ásamt hinum ýmsu lækjum. Árlega veiðast um 1500 sjóbirtingar í Vatnamótum. Til að stuðla enn frekar að dafnandi

Vatnamót í Skaftafellssýslu til Fish Partner Read More »

Grenlækur

Áríðandi tilkynning til veiðimanna í Grenlæk, Jónskvísl og Sýrlæk sumarið 2021

Vegna vatnsþurrðar sem nú er á efri svæðum í Grenlæk og í Jónskvísl og Sýrlæk mun öllum veiðimönnum sem veiða svæðin á vegum Fish Partner vera skylt að sleppa öllum fiski og veiða eingöngu á flugu. Engar undantekningar verða gerðar á þessum reglum í sumar. Þessar reglur eru settar í verndunarskyni því nokkuð víst er

Áríðandi tilkynning til veiðimanna í Grenlæk, Jónskvísl og Sýrlæk sumarið 2021 Read More »