Fyrstu dagar veiðitímabilsins – misjafnar aðstæður en góð byrjun víða - Fish Partner

Fyrstu dagar veiðitímabilsins – misjafnar aðstæður en góð byrjun víða

Veiðitímabilið er farið af stað, þó að aðstæður séu víða krefjandi þessa fyrstu daga. Vetrarveður hefur haldið velli lengur en vonast var til og ís hefur haft áhrif á nokkur veiðisvæði okkar, sem enn hafa ekki náð að opna að fullu.

Þrátt fyrir það hefur veiðin farið vel af stað á sumum svæðum og gefur góð fyrirheit fyrir tímabilið framundan.


Geirlandsá

Geirlandsá hefur byrjað tímabilið með látum þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Fyrsta hollið landaði alls 162 sjóbirtingum, sem verður að teljast afar sterkt í þessum aðstæðum.

Svæðið er uppselt fram í miðjan maí, en enn eru laus holl seinni part maí og í ágúst.


Vatnamót

Fyrsta hollið á Vatnamótum lenti í erfiðum aðstæðum með ísrek og kulda og veiðin var róleg.

Annað hollið fékk hins vegar allt aðra upplifun og lenti í algjöru bingo þegar aðstæður glöddu.

👉 Enn eru laus holl seinni part maí og í ágúst.


Þrastalundur

Ekki hefur verið mikið veitt í Þrastalundi enn sem komið er, en þegar menn hafa reynt fyrir sér hafa bleikjur verið að koma á land.

👉 Þar eru enn nóg af lausum leyfum.


Þorsteinsvík

Þrátt fyrir mjög krefjandi aðstæður hefur Þorsteinsvíkin gefið vel og sýnir styrk sinn sem stöðugt og spennandi svæði snemma á tímabilinu.


Árbót

Árbót hefur lítið verið reynd í þessum vetraraðstæðum, en þar liggja tækifæri fyrir þá sem vilja taka fyrstu túrana.

👉 Nóg af lausum leyfum í apríl


Hvað er framundan?

Veðurspá næstu daga er hagstæðari og vonir standa til að hlýindi muni leysa ís af svæðum eins og Kárastöðum, Villingavatnsárósi og Villingavatni svo hægt verði að hefja veiðar þar í næstu viku.


Þó að byrjun tímabilsins hafi verið krefjandi víða, þá er ljóst að fiskur er á ferðinni og veiðin getur verið frábær þegar aðstæður gefa færi á sér.

Skoða vefsölu

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði