Kárastaðir komnir í gang - Fish Partner

Kárastaðir komnir í gang

Ísinn á Þingvallavatni er loksins farinn að láta undan og aðstæður til veiða að skapast á ný. Leiðsögumaðurinn Tryggvi Guðmundsson nýtti tækifærið og heimsótti Kárastaði í gær þar sem veiðin byrjaði af krafti.

Ekki leið á löngu þar til fyrsti fiskurinn var kominn á land, fallegur 72 cm urriði sem lofar góðu fyrir komandi daga.

Í dag heyrðum við í veiðimönnum sem voru búnir að landa 4 fiskum á 3 tímum á svæðinu.

Veiðin er greinilega að taka við sér og nú er góður tími til að tryggja sér leyfi, enn er úrval lausra daga á næstunni.

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði