Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Blanda svæði 4
Blanda er ein af þessum stóru þegar kemur að laxveiðiám Íslandi og er jafnframt í hópi þeirra fremstu og bestu. Blanda er þekkt fyrir miklar aflahrotur en veiðin hefur sveiflast mikið á síðastliðnum áratugum og hefur veiðin farið upp í hæstu hæðir sum ár. Laxinn í Blöndu er snemma genginn stórlaxa stofn sem byrjar að ganga í maí, og svo verða göngurnar kröftugri þegar kemur fram í júlí.
Þegar líða tekur á sumarið er það nánast árviss atburður að Blöndulón fyllist og jökulvatn flæðir yfir stífluna, þá er talað um að Blanda sé komin á yfirfall. Það koma þó ár sem að þetta gerist ekki og þá er hægt að veiða ána út tímabilið. Einnig getur það gerst að vélar séu sérstaklega keyrðar í Blönduvirkjun og þá getur áin gruggast. Fish Partner getur ekki tekið ábyrgð á ástandi árinar þegar menn eru við veiðar.
Blanda Sv 1
Blanda Sv 2
Blanda Sv 3
Blanda Sv 4
Svæði 4
Áin er alls ekki lík Blöndu sjálfri þar sem um er að ræða litla, fallega og tæra bergvatnsá sem liðast niður um gljúfrin. Fullkomin einhendu á þar sem þú ert alein/n í heiminum. Neðsti hlutinn er nokkuð aðgengilegur en efra svæðið þarf að ganga. Því ofar sem dregur því sjaldanar er veitt. Æskilegt er að veiðimenn séu í ágætis formi ætli þeir að leggja efri hlutan á sig
Veiðisvæði
Frá og með Litla Klif (400) að og með Rugludalshyl (490). Vinsamlegast athugið að bannað er að veiða fyrir neðan veiðistað Nr.400 og niður að aðfalli.
Fjarlægð frá Reykjavík:
290km
Veiðitímabil:
20. júní - 20. september
Meðalstærð:
Fjöldi stanga:
Þrjár stangir seldar saman í pakka
Leyfilegt agn:
Fluguveiði eingöngu með flugustöng og skal öllum laxi slept
Veiðibúnaður:
Einhenda #7-9
Bestu flugurnar:
Gárutúpur, Sunray Shadow, Collie dog, Snældur, Munroe Killer og Francis
Húsnæði:
Aðgengi:
Misjafnt. Gott að sumum stöðum en erfitt að öðrum. Æskilegt að veiðimenn séu vel á sig komnir
Veiðileyfi
Öll verð miðast við eina stöng
Put Address Here
Vinsæl veiðisvæði
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.