Veiðifréttir og laus leyfi - Fish Partner

Veiðifréttir og laus leyfi

Vatnamót

Það er gengin fiskur og menn sem voru þar á dögunum lentu í hörkuveiði. Fiskurinn var víða um svæðið og þeir sem voru við veiðar áttu frábæran tíma á bakkanum. Þeir lönduðu hvorki meira né minna en 18 sjóbirtingum upp að 82cm! Myndirnar tala sínu máli. Við eigum örfá laus holl á næstunni.

Svartá í Hún. 

Veiðimenn sem voru að hætta á hádegi í gær áttu frábæran morgun. Það er klárlega fiskur að sullast inn úr Blöndu. 

Erlendur veiðimaður sem var á veiðum fékk 3 laxa á morgunvaktinni, einn smálax, annan 87cm og einn svakalega bolta sem mældist 99,5cm. Það var alveg sama hvernig hann var mældur, hann vildi ekki ná 100cm. 

Við eigum örfá laus holl á næstunni í þessari perlu í Húnavatnssýslu 

Norðlingafljót. 

Veiðin þar hefur verið upp og niður í sumar. Þá aðallega vegna hita og jökulbráðar. En hún á það til að litast þegar mikill hiti er. Nú er hins vegar að kólna og ætti áin að vera í frábæru vatni  út ágúst . Ágúst er yfirleitt besti mánuðurinn þar í Norðlingafljóti og því enginn tími betri en akkúrat núna.

Töluvert laust þar núna í ágúst. 

Arnarvatnsheiði. 

Veiðin er búin að vera algjörlega frábær þar í sumar og er enn. Við viljum benda mönnum á að ágúst getur verið mjög góður þarna uppfrá og gefur oftar en ekki hörku veiði. Þá serstaklega í kringum læki sem renna í vötnin. 

Nóg er af lausum leyfum á Arnarvatnsheiði það sem eftir lifir tímabils og einnig er töluvert laust í skálana á svæðinu

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði