Stofnun Íslensku fluguveiðiakademíunnar - Fish Partner
Flugukast

Stofnun Íslensku fluguveiðiakademíunnar

Stofnun Íslensku fluguveiðiakademíunnar

Fish Partner hefur stofnað Íslensku fluguveiðiakademíuna. Akademían er fræðslumiðstöð sem hefur það að markmiði að miðla þekkingu og reynslu til áhugamanna um veiði. Markmiðin eru einnig að auka nýliðun í fluguveiði með áherslu á börn og ungmenni og hópa sem eru í minnihluta í sportinu. Stofnun Akademíunnar er svar eigenda Fish Partner við lítilli nýliðun á undanförnum árum og takmörkuðu framboði af veiðitengdri fræðslu hér á landi.

Kjarnastarfsemi Akademíunnar er námskeiðahald og fyrirlestrar. Nú þegar liggur fyrir þétt dagskrá af námskeiðum og fyrirlestrum í vetur og eru þónokkur til viðbótar í pípunum. Akademían er í samstarfi við Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar.

Af námskeiðum á dagskránni má nefna:

  • Flugukastnámskeið þar sem allir kennarar eru með FFI réttindi
  • Fluguhnýtingarnámskeið fyrir byrjendur
  • Ljósmyndanámskeið með Matt Harris
  • Námskeið í stangarsmíðum
  • Þurrfluguhnýtingar
  • Að setja í þann stóra með Nils Folmer
  • Opið hús til æfinga í fluguköstum

Allar nánari upplýsingar um námskeiðin og Akademíuna er að finna á vef Akademíunnar á: https://fishpartner.is/akademia/

Allar fyrirspurnir um starfsemi Akademíunnar má senda á info@fishpartner.com. Þeir sem eru áhugasamir um að halda námskeið og fyrirlestra eru einnig hvattir til að senda okkur línu.

Kær kveðja frá Fish Partner,
stofnanda Íslensku fluguveiðiakademíunnar

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði