Þingvallavatn – Kaldárhöfði - Fish Partner

Þingvallavatn – Kaldárhöfði

Kaldárhöfði er syðsta veiðisvæðið í Þingvallavatni og nyrsta svæðið í Úlfljótsvatni. Svæðið nær frá Sprænutanga í Þingvallavatni í norðri og að landamörkum við Efri-Brú við Úlfljótsvatn í suðri. Um er að ræða mjög fjölbreytt svæði sem bæði býður upp á urriða- og bleikjuveiði.

Svæðið á sér langa veiðisögu og var sennilega besta urriðasvæðið í Þingvallavatni fyrir tíma virkjana í Sogi. Með vaxandi veiði á urriða í vatninu verður spennandi að fylgjast með veiðinni á Kaldárhöfða á næstunni.

Hluti svæðisins er í Úlfljótsvatni og er það svæði bæði þekkt fyrir stóra urriða og nóg af bleikju. Urriðaveiðin er einkum góð nyrst í vatninu og út af hólmanum en bleikjuveiðin er góð á öllu svæðinu og eru Skútuvík og eyjan líklegast þekktustu bleikjusvæðin.

Veitt er á sex stangir frá 1. maí – 10. júní en tíu stangir frá 11. júní – 31. ágúst. Seldar eru stakar stangir frá morgni til kvölds. Veiðitími er að hámarki 12 klukkustundir á dag á tímabilinu frá kl. 8 til 23. Aðeins er heimilt að veiða á flugu og spún. Öllum urriða er sleppt.

 

Önnur veiðisvæði við Þingvallavatn og Úlfljótsvatn:

Villingavatnsárós

Villingavatn SvB

Villingavatn(tjörnin)

Kárastaðir

 

Veiðifélagar Fish Partner safna 5% Veiðikrónum við kaup á leyfi á Kaldárhöfða í vefsölu

Veiðifélagar Fish Partner fá 5% afslátt af veiðileyfum á Kaldárhöfða í vefsölu

 

Fjarlægð frá Reykjavík:

70km

Veiðitímabil:

1. maí - 15. september

Meðalstærð:

8 pund urriði, 2 pund bleikja

Fjöldi stanga:

6-10

Leyfilegt agn:

Fluga og spúnn

Veiðibúnaður:

Einhenda/tvíhenda #6-8

Bestu flugurnar:

Straumflugur, púpur og þurrflugur

Húsnæði:

Hægt að fá gistingu í veiðhúsinu Efri-Brú

Aðgengi:

Fólksbílafært

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði