Nú er hægt að bóka veiðileyfi á laxveiðisvæði Svartár í Húnavatnssýslu fyrir sumarið 2027. Endurbókunum er lokið og laus holl eru komin í vefsölu Fish Partner.
Svartá rennur um Svartárdal og sameinast Blöndu í Langadal. Áin er straumhörð og veiðistaðirnir fjölbreyttir, svo það er gaman að prófa sig áfram með flottúpur og hitch. Auk laxins leynist urriði í ánni og því er vel þess virði að hafa léttu stöngina með í för. Nánar um Svartá
Veiðimenn hafa afnot af veiðihúsi í Svartárdal þar sem hópurinn sér um sig sjálfur. Þar er gott að koma saman eftir dag við ána, elda kvöldmat og ræða hvar eigi að byrja næsta morgun.
Hvort sem þú þekkir Svartá vel eða hefur lengi langað að prófa hana geturðu nú skoðað laus holl og fundið dagsetningar sem henta þínum hópi.
Skoða laus holl
















