Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir. Tjörnin hefur hingað til verið hálfgert leyndarmál nokkurra veiðimanna. Urriðinn er af Þingvallastofni og stærðin og grimmdin eftir því. Vatnið er lítið og grunnt og oft má sjá straumrastir í yfirborðinu eftir boltafiska.
Veiðin getur verið sýnd en ekki gefin og stundum þarf að beita litlum púpum og þurrflugum en á öðrum dögum er fiskurinn grimmur í straumflugur.
Veiðitímabilið er frá 1. apríl til 30. september. Eingöngu er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt. Veitt er á hámark fjórar stangir á dag.
Aðeins má veiða á agnhaldslausar flugur eða flugur með klemmt niður agnhald.
Reglur við Villingavatn.