2 stanga sjóbirtings holl. - Fish Partner

2 stanga sjóbirtings holl.

Nú í fyrsta sinn á opnum markaði er hægt að veiða þrjár af mögnuðustu perlum sjóbirtingsveiðinnar í einu og sama hollinu.
Um er að ræða þriggja daga holl í Vatnamótum, Geirlandsá og Fossálum, þar sem veiðimenn veiða heilan dag á hverju svæði fyrir sig. Hollið er með fastri róteringu, og er skipulagt sem hér segir:

Fossálar(Neðra svæði)Hálfur dagur frá klukkan 15:00
VatnamótHeill dagur
Geirlandsá (Efra svæði fh, neðra eh)Heill dagur
Fossálar(Þverárvatn, efra svæði)Hálfur dagur til klukkan 12:00

Þetta eru tveggja stanga holl með gistingu að Hörgslandi og er mönnum velkomið að tvímenna á stöng. Stangirnar eru seldar saman.

Húsið að Hörgslandi er lítið en þægilegt, með gistingu fyrir 6 manns. Tvö tveggja manna herbergi eru í húsinu ásamt svefnlofti. Í húsinu er eldhúskrókur og stofa. Gasgrill er í húsinu. 

Þetta er algjörlega frábært tækifæri til þess að kynnast nokkrum af bestu sjóbirtingssvæðum landsins á besta tíma. Svæðin eru gríðarlega fjölbreytt og bjóða upp á svo til allar tegundir fluguveiða. 

Tekið skal fram að eingöngu er leyfð veiði á flugu og skal öllum fiski sleppt, skilyrðislaust. 

Bóka leyfa

Vinsæl veiðisvæði

Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.