Miðsvæðið í Blöndu - Fish Partner

Miðsvæðið í Blöndu

Miðsvæðið er nýtt silungasvæði í Blöndu. Svæðið nær frá og með Eyrarenda (264) niður að og með Steinastrengjum (221). Svæðið er um tíu kílómetrar að lengd og eru fjölmargir veiðistaðir á svæðinu. Áin liðast niður Langadal og eru veiðistaðir fjölbreyttir og fjölmargir. Þeir sem þekkja til vita að þarna er mikið um vænan staðbundinn silung sem og sjóbleikju og sjóbirting. Laxinn gengur þarna um og er alltaf von á því að setja í lax. Veitt verður með að hámarki fjórum stöngum á svæðinu. Eingöngu er um fluguveiði að ræða. Aðeins er leyfilegt að hirða einn silung á stöng á dag en öllum laxi skal undantekningarlaust sleppa.

Boðið verður upp á flotferðir niður dalinn með leiðsögumanni en sú upplifun er eitthvað sem allir ættu að prófa.

Veiðhús

Hólahvarf er glæsilegt veiðihús með fullri þjónustu, topp aðbúnaði og öllum nútíma þægindum.

Í húsinu eru 12 tveggja manna herbergi með sér baðherbergi. Nýr stór pottur er fyrir utan húsið og gufubað er inni í húsinu.

Setustofan er rúmgóð með útsýni yfir ána og dalinn.

Fjarlægð frá Reykjavík:

240km

Veiðitímabil:

20. júní - 5. september

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

2-4

Leyfilegt agn:

Fluga - Kvóti: 1 silungar á stöng á dag. (öllum laxi skal sleppt)

Veiðibúnaður:

#5-7

Bestu flugurnar:

Straumflugur og púpur

Húsnæði:

Hægt að fá gistingu í Hólahvarfi

Aðgengi:

4x4

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.