Laufavatn - Fish Partner

Laufavatn

Laufavatn er lítið fallegt vatn á Rangárvallaafrétti undir fjallinu Laufafelli. Það er í um 530 metra hæð yfir sjávarmáli og er um 1,12 km² að flatarmáli. Vatnið liggur við fjallabaksleið syðri og er slóði frá veginum að vatninu. Gott aðgengi er að vatninu en þó eingöngu fyrir fjórhjóladrifsbíla eins og Fjallabaksleiðin. Vatnið er steinsnar frá Álftavatni þar sem hægt er að fá gistingu hjá Ferðafélagi Íslands. Bæði í Skála og tjaldi https://www.fi.is/is/skalar/skalar-ferdafelags-islands/alftavatn

Í Laufavatni er mikið af smárri bleikju sem var á sínum tíma sleppt í vatnið. Vatnið er kjörið fyrir unga veiðimenn sem eru að stíga sín fyrstu skref í veiði því hér fá oftast allir fisk. Umhverfið er geysifagurt og mikil upplifun að vera þarna á fallegum sumardögum.

Leiðarlýsing

Fjarlægð frá Reykjavík er um 160 km. Ekin er Fjallabaksleið Syðri.

Veiðitími

Frá því að Fjallabaksleið syðri opnar – 30. September. Veiða má í vatninu allan sólarhringinn.

Fylgjast má með færð vega á vef vegagerðarinnar: https://www.vegagerdin.is/ferdaupplysingar/faerd-og-vedur/sudurland-faerd-kort/

Reglur

Hundar: Já, í bandi
Notkun báta: Já, en sýna þarf veiðimönnum á landi virðingu
Netaveiði: Nei
Hirða skal allan fisk sem veiddur er úr vötnunum

Upplýsingar

Fjarlægð frá Reykjavík: 160km
Veiðitímabil: Frá því að vegur er fær – 1. september
Meðalstærð: ½- 1 pund
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spúnn
Bestu flugur: Ýmsar straumflugur og púpur
Húsnæði: Skáli Ferðafélsgs íslands við Áftavatn er hægt að leigja
Tjalda: Tjaldstæði er stutt frá á vegum Ferðafélags Íslands
Veitingar: Veitingaskáli er við Álftavatn
Aðgengi: Fært fjórhjóladrifnum bílum.

Fjarlægð frá Reykjavík:

160km

Veiðitímabil:

Frá því að vegur opnar - 1. september

Meðalstærð:

½ pund

Fjöldi stanga:

Ótakmarkað

Leyfilegt agn:

Fluga, maðkur og spúnn

Veiðibúnaður:

Bestu flugurnar:

Húsnæði:

Aðgengi:

Fært fjórhjóladrifnum bílum

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.