Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Blanda – Vorveiði
Nú verður aftur boðið upp á vorveiði í Blöndu og gefst veiðimönnum einstakt tækifæri til að upplifa fjölbreytta og spennandi veiði í þessari stórbrotnu á.
Veiðitímabilið er frá 1. maí til 4. júní og nær veiðisvæðið yfir allt svæði 2 og 3 að undanskildum Svarthyl sem er friðaður á vorin. Á þessum tíma má veiða á 6 stangir, sem eru seldar stakar, einn dag í senn, frá morgni til kvölds.
Á svæðinu er hægt að veiða bleikju, urriða og sjóbirting, sem eru bæði kraftmiklir og skemmtilegir viðureignar á þessum árstíma. Vorveiðin í Blöndu er frábært tækifæri fyrir veiðimenn til að reyna við þessa fiska í fjölbreyttum aðstæðum, allt frá straumhörðum köflum til rólegri veiðistaða.
Fjarlægð frá Reykjavík:
240km
Veiðitímabil:
1. maí - 4. júní
Meðalstærð:
2 pund
Fjöldi stanga:
6
Leyfilegt agn:
Fluga - Kvóti: 2 silungar á stöng á dag.
Veiðibúnaður:
Einhenda/tvíhenda #5-8
Bestu flugurnar:
Straumflugur og púpur
Húsnæði:
Aðgengi:
4x4
Veiðileyfi
Öll verð miðast við eina stöng
Put Address Here
Vinsæl veiðisvæði
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.