Þingvallavatn – Villingavatnsárós - Fish Partner

Þingvallavatn – Villingavatnsárós

Eitt magnaðasta urriðasvæði í veröldinni

Villingavatnsárós er eitt magnaðasta urriðasvæði Þingvallavatns. Eins og nafnið gefur til kynna á Villingavatnsá ós á svæðinu og urriðinn leitar í ósinn til að melta fæðu. Svæðið getur gefið ótrúlega veiði og mikið er af stórum fiski. Einn af kostum svæðisins er að fiskurinn heldur þar til allt sumarið en hverfur ekki á dýpið, líkt og algengt er á öðrum svæðum við Þingvallavatn. Þetta gerir það að verkum að hægt er að veiða þessa stórkostlegu fiska á litlar púpur og þurrflugur þegar fram kemur í júní.

Veitt er á tvær stangir á svæðinu og aðeins er veitt á flugu. Öllum urriða skal sleppt.

Besti veiðitíminn er yfirleit á vorin og snemmsumars og svo aftur á haustin. Einnig getur veiðin verið ævintýraleg á sumrin eftir miklar rigningar þegar Villingavatnsá bólgnar upp.

Við mælum með að veiðimenn byrji að veiða frá landi áður en vaðið er út þar sem urriðinn getur oft legið mjög nálægt landi.

Athugið: Villingavatnsárós Sv. B er nú hluti af Villingavatnsárós Sv. A. Veiðisvæðið er því stærra, en áfram eru aðeins 2 stangir leyfðar.

Reglur við Villingavatnsárós

Leggið bílum í þartilgert stæði. Akstur utanvega er stranglega bannaður. Stranglega bannað er að aka sandinn niður að ós. Leggið í stæðið og labbið. Akið varlega og hægt um, fé og þá sérstaklega lömb geta verið á veginum. Öll lausaganga hunda er stranglega bönnuð.
Vinsamlegast notið kamarinn.
Vinsamlegast skráið allan fisk í veiðibók við bílastæðið.
Björgunarvesti eru í gulum kassa við bílastæðið.
Ef hliðið er lokað þarf að hringja í eftirfarandi númer til að opna: 571-4545, 867-7545 eða 898-3946

 

Önnur veiðisvæði við Þingvallavatn og Úlfljótsvatn:

Kárastaðir

Villingavatn (tjörnin)

Kaldárhöfði

 

 

Veiðifélagar Fish Partner safna 7% Veiðikrónum við kaup á leyfi í Villingavatnsárós í vefsölu

Fjarlægð frá Reykjavík:

44km

Veiðitímabil:

15. apríl - 15. september

Meðalstærð:

8 pund

Fjöldi stanga:

2

Leyfilegt agn:

Fluga

Veiðibúnaður:

Einhenda #6-8

Bestu flugurnar:

Straumflugur, púpur og þurrflugur

Húsnæði:

Ýmsir möguleikar

Aðgengi:

Fólksbílafært

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði