Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Langavatn á Héraði
Langavatn á Héraði
Langavatn er skemmtilegt veiðivatn staðsett í Norður Múlasýslu. Vatnið er í um 108 metra yfir sjávarmáli. Vatnið er steinsnar frá Egilstöðum og því upplagt að renna fyrir fisk þar þegar farið er um svæðið. Aðgengi er gott og fært öllum bílum en þó ekki á vorin á meðan frost er að fara úr jörðu. Bæði urriði og bleikja veiðist í vatninu og er veiðin talin best fyrripart sumars. Vænn fiskur veiðist í vatninu eða allt að sex pund en mest eru þetta góðir matfiskar um 1,5 -2 pund. Umhverfið er ægifagurt og margt að skoða og sjá á svæðinu. Ýmsar sögur eru til af svæðinu og er ein þeirra af henni Staffells Möngu en hún var kona sem drukknaði í Langavatninu og gekk svo aftur og fylgdi Staffellingum og gerði vart við sig áður en þeir komu á aðra bæi. Frá henni segir áreiðanlega í þjóðsögum Sigfúsar Sigfússonar.
Leiðarlýsing
Vegalengd frá Reykjavík er um 630 km og um 8 km fá Egilsstöðum. Beygt er inn Fellaveg af þjóðveginum og ekið þar um 15 km, þaðan beygt til vinstri og þá eru um 500 metrar að vatninu (sjá frekari útskýringar á korti).
Veiðisvæðið
Svæðið sem heimilt er að veiða á er vesturbakki í landi Staffells og skulu veiðimenn virða mörkin. Sjá betur á korti.
Veiðitími
Heimilt er að veiða frá því að ís leysir og til og með 30. september. Veiði er heimil allan sólarhringinn.
Reglur
Veiðimenn skulu gera grein fyrir sér með því að hringja eða senda skilaboð til veiðivarðar.
Einnig skal láta hann vita af aflabrögðum að veiði lokinni.
Hundar leyfðir: Já, passa skal að hafa þá innan sjónmáls.
Notkun báta: Kajak og bellý bátar leyfðir en ekki stærri báta.
Netaveiði: Nei
Tjalda: Ekki heimilt vegna friðaðs skóglendissvæðis en stutt er í skipulögð tjaldsvæði við Egilsstaði
Umsjónarmaður/veiðivörður: Eiríkur Egill Sigfússon. S: 863 5616
Veiðifélagar veiða frítt í Langavatni
Fjarlægð frá Reykjavík:
630km
Veiðitímabil:
Ísa leysir- 30. september
Meðalstærð:
2 pund
Fjöldi stanga:
Leyfilegt agn:
Fluga, maðkur, spún
Veiðibúnaður:
Einhenda #4-6
Bestu flugurnar:
Straumflugur, púpur og þurrflugur
Húsnæði:
Aðgengi:
Fólksbílafært
Veiðileyfi
Öll verð miðast við eina stöng
Put Address Here
Vinsæl veiðisvæði
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.
Grenilækur rennur í Landbroti vestan við Kirkjubæjarklaustur. Lækurinn er eitt af bestu sjóbirtingsveiðisvæðum heims og hefur notið gríðarlegra vinsælda um árabil.