Dómadalsvatn - Fish Partner Veiðifélag

Dómadalsvatn

Dómadalsvatn liggur nyrst í Dómadal að Fjallabaki. Vatnið tilheyrir s.k. Framvötnum og er í 566 metra hæð, fallegt vatn sem er rétt innan við 0,1 km2 að stærð.  Ekið er að vatninu út frá Dómadalsleið þar sem vegurinn liggur að og yfir Dómadalsháls. Ökufært er inn að vatninu þar sem gott bílastæði er til staðar. Upp frá bílastæðinu liggur gönguleið að Lifrarfjallavatni, um 20 mín. gangur.

Dómadalsvatn er eitt fárra vatna á svæðinu sem vel sýnilegt aðrensli liggur að þar sem sprækur lækurinn við rætur Dómadalsháls skoppar yfir F225, vel fólksbílafært vað sem sumir vanmeta þó þannig að jafnvel 4×4 bílar hafa hikstað sé of greitt ekið yfir það.

Við fyrstu sýn má halda að vatnið sé allt frekar grunnt en svo er ekki því mesta dýpi þess er vel yfir 15 metrar þegar út í skálina er komið. Að vísu er aðgrunnt að sunnan, en vel má gera góða veiði þar síðla dags þegar urriðinn leitar upp á grynningarnar. Oft má sjá veiðimenn undir hlíðinni að austan, þaðan sem stutt er í dýpið sem og í suð-vestur horni þess. Í vatninu hefur nær eingöngu veiðst urriði hin síðari ári, en á árum áður var sleppt í það bleikjuseiðum og lá við að það yrði ofsetið, svo mikið fjölgaði hún sér úr hófi. Urriðinn í vatninu getur orðið rígvænn og hafa menn sett þar í 5 punda fiska en algengasta stærð er á bilinu 1,5 – 2 pund. Fallegur fiskur og ljóngrimmur að eiga við.

 

 

Veiðimenn athugið! Munið að skila veiðiskýrslum. Það er bæði hægt að skila skýrslu í póstkassa við afleggjara að Ljótapolli eða koma við í landmannahelli.

 

Veiðifélagar Fish Partner veiða frítt í Dómadalsvatni

Fjarlægð frá Reykjavík:

159km

Veiðitímabil:

Meðan fært er á veiðisvæðið

Meðalstærð:

1-2 pund

Fjöldi stanga:

Leyfilegt agn:

Fluga, maðkur, spún

Veiðibúnaður:

Einhenda #4-6

Bestu flugurnar:

Straumflugur, púpur og þurrflugur

Húsnæði:

Aðgengi:

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði