Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Úlfsvatnsskáli
Skálinn skiptist í þrennt, fyrst er forstofa með salernum þar næst er gengið inn í borðstofu þar sem er eldunaraðstaða borð og stólar. Síðast er svefnálmann þar eru dýnur fyrir minnst 20 manns og skiptist legurýmið í tvennt sitthvoru meginn við gang sem er eftir endilöngum skálanum. Haustið 2015 var elsti hluti skálans rifinn og byggt nýtt hús og tengt við svefnálmuna. Aðstaðan er mun betri en hún var. Í skálanum er eldunaraðstaða gas og eldunaráhöld. Borðbúnaður, vaskur með rennandi köldu vatni og salerni. Skálinn er kynntur með gasofnum.
Gasgrill er á staðnum og eru gestir beðnir um að þrífa það vel eftir notkun.
Skipti fara fram kl 17:00, sé enginn í húsinu þegar komið er á svæðið er sjálfsagt að gestir setjist fyrr að.
Fólk er beðið um að ganga vel um skálann og skilja við hann hreinan og snyrtilegann.
Hesthús er við skálann og gerði með rennandi vatni. Það er ekki hægt að beita hrossum þarna en það er hægt að panta hey og eru menn vinsamlegast beðnir um að láta vita með fyrirvara óski þeir þess að fá hey. Verð fyrir notkun á gerði og hesthúsi er 360 kr á hross yfir nóttina. Heyrúlla, komin á staðinn, er á 35.000 kr.
Hægt er að bóka hey og aðstöðu fyrir hesta í körfu eftir að gisting er bókuð
Svefnherbergi:
1
Stærð:
90m2
Gistirými:
20
Fjarlægð frá Reykjavík:
150km
Aðgengi:
4x4
Gistingar
Put Address Here
Vinsæl veiðisvæði
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.