Norðlingafljót - Fish Partner

Norðlingafljót

Norðlingafljót

Norðlingafljót á upptök sín norðan Langjökuls og rennur þaðan um 70km til vesturs í Hvítá. Mikil náttúrufegurð er við fljótið og telja margir veiðimenn það vera eina fegurstu veiðiá landsins. Umhverfið er margbreytilegt og veiðistaðir mjög fjölbreyttir. Fljótið rennur um hina rómuðu Arnarvatnsheiði sem er án efa eitt allra gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins. Fjölmargir lækir renna til fljótsins úr vötnum heiðarinnar.

Í fljótinu er bæði urriði og bleikja og er meðalstærð í hærri kantinum. Stærsti fiskur sem vitað er til að veiðst hafi í fljótinu fram að þessu var fimm og hálft kíló. Algeng stærð á urriða eru tvö til sex pund og bleikjan er oft á bilinu tvö til fjögur pund. Þó er töluvert af stærri fiskum í fljótinu.

Veiðisvæðið nær frá upptökum fljótsins niður að Bjarnafossi. Hluti svæðisins er vel aðgengilegur á bíl en stór hluti krefst göngu og því meira sem veiðimenn eru til í að ganga, þeim mun betri árangri má búast við.

Hægt er að fá svefnpokapláss í Álftakróki sem er skáli á bökkum fljótsins. Þar er rennandi vatn og salerni. Skálinn er með eldhúsi með gasi og er allur helsti borðbúnaður til staðar ásamt gasgrilli.

 

TIL ATHUGUNAR

  • Eingöngu er veitt á flugu í ánni og skal öllum fiski sleppt skilyrðislaust.
  • Skráið afla í veiðibókina áður en haldið er heim. Veiðibókin er staðsett í póstkassa við brúna.
  • Akið ekki utan vega.
  • Veiðifélagið ber ekki ábyrgð vegna tjóns sem búsmali veldur á ökutækjum.
  • Veiðisvæðið nær frá upptökum fljótsins niður að Bjarnafossi.
  • Meðferð skotvopna er bönnuð við ána.

Veiðifélagar Fish Partner fá 5% endurgreiðslu í formi Veiðikróna við kaup á leyfi í Norðlingafljóti í vefsölu.

Veiðifélagar Fish Partner fá 10% afslátt af veiðileyfum í Norðlingafljóti í vefsölu.

Fjarlægð frá Reykjavík:

150km

Veiðitímabil:

15. júní - 31. ágúst

Meðalstærð:

Bleikja og urriði 1,5 kg

Fjöldi stanga:

4

Leyfilegt agn:

Fluga

Veiðibúnaður:

Einhenda #4-7

Bestu flugurnar:

Straumflugur, púpur og þurrflugur

Húsnæði:

Ýmsir möguleikar

Aðgengi:

4x4

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði