Bjarnarfjarðará á Ströndum - Fish Partner

Bjarnarfjarðará á Ströndum

Bjarnarfjarðará er sjóbleikjuá í Bjarnarfirði á Ströndum um 35 km akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið er um 7 km með 25 merktum veiðistöðum. Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði. Bjarnarfjarðará er eftirsótt sjóbleikjuá og þar veiðast stundum laxar.

Veitt er á fjórar stangir í Bjarnarfjarðará en 2 stangir í efri hlutanum sem kallast Goðdalsá.

Veiðitímabil er frá 20. júní til 20. september og veitt daglega kl: 07:00 – 13:00 og 16:00 – 22:00 (20. jún. – 20. ág.) 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00 (21. ág. – 20. sept.).

Leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spún. Veiðimenn eru beðnir um að gæta hófsemi við veiðar og ekki er ætlast til að drepnar séu fleiri en 3 bleikjur á stöng á dag.

Gott aðgengi er að flestum veiðistöðum.

Ekki er veiðihús við ána en Hótel LaugarhóllSvanshóll apartments og  Hvammur Cottages bjóða upp á góða gistingu við árbakkann.  Í Bjarnarfirði er sundlaug, heitur pottur, náttúrulaugar, veitingasala og einnig gott tjaldsvæði.

Veiðisvæðið nær frá ósi upp að ármótum Goðdalsár og Sunndalsár.  Efsti veiðistaður svæðisins er Berghylur og er öll veiði bönnuð ofan hans í Goðdalsá

Fjarlægð frá Reykjavík:

245km

Veiðitímabil:

20. júní til 20. september

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

4

Leyfilegt agn:

flugu, maðk og spún.

Veiðibúnaður:

#3-5 einhenda

Bestu flugurnar:

Húsnæði:

Aðgengi:

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiðisvæði landsins.
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.