Kolka (Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá) - Fish Partner

Kolka (Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá)

Vatnasvæði Kolku í Skagafirði samanstendur af ánum Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá, auk Kolku sjálfrar. Nafnið Kolka tekur áin þó ekki fyrr en þessar tvær ár sameinast, um sex kílómetrum frá ósnum. Báðar eru þær jökulskotnar dragár og geta því vaxið hratt í miklum rigningum eða hlýindum. Þrátt fyrir það verður vatnið sjaldan svo gruggugt að það hafi veruleg áhrif á veiðar.

Venjulegt sumarrennsli í Hjaltadalsá er á bilinu 10–15 rúmmetrar á sekúndu. Á hverju sumri ganga oft góðar göngur af sjóbleikju upp árnar og hefur oft verið um 300 til 500 bleikjur yfir sumartímann. Auk þess veiðast yfirleitt nokkrir tugir laxa, og einnig kemur sjóbirtingur reglulega í veiðina.

Veiðistaðir eru víða um vatnakerfið, bæði langt upp eftir Hjaltadal og upp að stíflunni í Kolbeinsdalsá. Stíflan var reist árið 1985 í tengslum við virkjunina við Sleitustaði og setur takmörk á frekari fiskgengd upp ána. Árnar eru sums staðar straumharðar og áður fyrr voru þar töluverðir farartálmar áður en brýr voru byggðar.

Nokkrum kílómetrum frá sjó sameinast Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá og mynda þá Kolku. Hún rennur síðan til sjávar í Kolkuósi, sem er sögufrægur staður þar sem áður var verslunarstaður. Á því svæði hafa verið merktir fimm veiðistaðir.

Veiðihús

Við Efri-Ás stendur ágætt veiðihús sem fylgir veiðileyfum á svæðinu. Húsið býður upp á gistingu fyrir allt að átta manns, með tveimur svefnherbergjum auk svefnlofts.

Hjaltadalsá og Kolka eru staðsettar um það bil 300 km frá Reykjavík. Þegar ekið er norður er farið fram hjá Varmahlíð í Skagafirði í átt að Akureyri. Skömmu eftir að ekið hefur verið yfir brýrnar á Héraðsvötnum er beygt til vinstri (til norðurs) við skilti sem vísar á Hofsós og Siglufjörð.

Frá Akureyri er leiðin um 120 km. Þá er ekið yfir Öxnadalsheiði í átt að Varmahlíð og beygt til hægri við skiltið Hofsós–Siglufjörður, rétt áður en komið er að brúnni yfir Héraðsvötn.

Ef ekið er frá Siglufirði er vegalengdin um 75 km. Þá er farið í gegnum Strákagöng, haldið vestur um Fljót og síðan suður fyrir Hofsós. Ekið er eftir vegi númer 76 þar til komið er að skilti sem merkt er „Heim að Hólum“. Þar er beygt upp Hjaltadal og haldið áfram þar til komið er að brúnni yfir Hjaltadalsá. Veiðihúsið er staðsett við Efri-Ás.

Veiðireglur

Sumarveiði
20. júní – 20. September. Veiðitími er frjáls á milli klukkan sjö og miðnættis en þó ekki meira en tólf klukkustundir á dag. Leyfilegt er að veiða með fjórum stöngum á veiðisvæðinu. Eingöngu er leyfð fluguveiði með flugustöng. Kvóti eru þrír fiskar á stöng á dag. Eftir að kvóta er náð er heimilt að veiða og sleppa. Veiðimenn skuldbinda sig til að skrá alla veiði í veiðibók.

Vorveiði
Frá og með 1. apríl og til og með 20. september er heimilt að veiða í framanverðum Kolbeinsdal þ.e. fyrir innan svo nefnda Hreðurhóla. Öllum fiski skal sleppt á þessu svæði og eingöngu veitt með flugu. 

 

Veiðifélagar fá 10% afslátt af leyfum í Kolku í vefsölu

Fjarlægð frá Reykjavík:

305km

Veiðitímabil:

1. apríl - 20. september

Meðalstærð:

1-2 pund

Fjöldi stanga:

4

Leyfilegt agn:

Fluga

Veiðibúnaður:

#5 einhenda

Bestu flugurnar:

Púpur og straumflugur

Húsnæði:

Veiðihús við Efri-Ás

Aðgengi:

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öxarár. Þar er helst urriðaveiði á vorin og síðsumars en bleikjuveiði yfir hásumarið.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–15. september
Stangir: 4–7 eftir tímabili
Leyfilegt agn: Fluga · Spún einnig leyfður 15. júní–31. ágúst

Skoða Þingvallavatn – Kárastaði

Villingavatn er lítið og grunnt vatn sem tengist Þingvallavatni. Þar veiðast stórir urriðar af Þingvallastofni.

Tegundir: Urriði
Staðsetning: Við sunnanvert Þingvallavatn
Veiðitímabil: 1. apríl–30. september
Stangir: 4
Leyfilegt agn: Fluga · Öllum fiski skal sleppt

Skoða Villingavatn (tjörnina)

Á sunnanverðri Arnarvatnsheiði eru fjölmörg vötn, ár og lækir með urriða og bleikju. Meðal vatna á svæðinu eru Úlfsvatn og Arnarvatn litla og hægt er að bóka gistingu í veiðihúsum á heiðinni.

Tegundir: Urriði · Bleikja
Staðsetning: Arnarvatnsheiði
Veiðitímabil: 15. júní–31. ágúst
Stangir: Ótakmarkað
Leyfilegt agn: Fluga, spúnn og beita · Eingöngu fluga í Refsveinu og Stóralóni

Skoða Arnarvatnsheiði