Veitt er á fjórar stangir í 2 daga hollum(hálfur-heill-hálfur) og allar stangir seldar saman. Veiðihúsið við Efri-Ás með uppábúnum rúmum og þrifum innifalið.
Veiðitími er frjáls á milli klukkan sjö og miðnættis en þó ekki meira en tólf klukkustundir á dag. Leyfilegt er að veiða með fjórum stöngum á veiðisvæðinu. Eingöngu er leyfð fluguveiði með flugustöng. Kvóti eru þrír fiskar á stöng á dag. Eftir að kvóta er náð er heimilt að veiða og sleppa. Veiðimenn skuldbinda sig til að skrá alla veiði í veiðibók.
