Skaftá – Ásgarður - Fish Partner Veiðifélag - Sjóbirtingur

Skaftá – Ásgarður

Skaftá –  Ásgarður

Ásgarðssvæðið í Skaftá er fremur stutt veiðisvæði og fjöldi veiðistaða er nokkuð breytilegur milli ára og jafnvel mánaða. Skaftáin breytir um stefnur og því er svæðið mjög breytilegt. Efst á svæðinu eru vatnamót Tungulækjar og Skaftár og þar er oftast besta veiðin. Aðallega er um vorveiði að ræða en apríl og maí geta verið ævintýralegir því gríðarlegt magn af fiski getur verið á svæðinu, bæði Tungulækjarfiskur sem og Skaftárfiskur. Veiðin getur einnig verið góð á haustinn, en það miðast allt af því hvernig vatnsstaðan í Skaftá er. Seint á haustin þegar kólna fer á hálendinu og lítið vatn í Skaftá dettur veiðin yfirleitt í gang á haustin. Ef Skaftá er vatnslítil og tær er veiðin alla jafna góð. Uppistaðan af veiðinni er mjög vænn sjóirtingur. Ásgarðstjörnin fylgir með veiðileyfum en sjóbirtingur gengur í hana úr Skaftánni.

 

ATH! Veiðimörk eru neðan girðingar að sunnanverðu þar sem steyptur staur stendur út í ánna. Farið alls ekki inn fyrir girðingu og kastið ekki upp fyrir girðingu.  Akið bílnum inn fyrir hlið og leggið þar.  Truflið ekki veiðimenn sem eru við veiðar í Tungulæk.  Munum að virða veiðirétt annara og sýna tilitsemi.

 

Veiðifélagar Fish Partner fá 3% endurgreiðslu í formi Veiðikróna við kaup á leyfi í Skaftá í vefsölu.

Veiðifélagar Fish Partner fá 10% afslátt af veiðileyfum í Skaftá í vefsölu.

Fjarlægð frá Reykjavík:

280 km

Veiðitímabil:

1. apríl - 1. júní, 1. september - október

Meðalstærð:

Fjöldi stanga:

2

Leyfilegt agn:

Fluga

Veiðibúnaður:

#7-8 ein- eða tvíhenda, sökkendi

Bestu flugurnar:

Straumflugur

Húsnæði:

Fylgir ekki, ýmsir möguleikar

Aðgengi:

Veiðileyfi

Öll verð miðast við eina stöng

Put Address Here

Vinsæl veiðisvæði

Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Arnarvatnsheiðin er eitt gjöfulasta silungsveiði svæði landsins
Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns – Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn skammt frá ós Öxará
Villingavatn, eða Tjörnin, lætur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir.