Veitt er á 5 stangir og á tímabilinu 1.apríl-31. maí eru allar stangir seldar saman í tveggja daga hollum(hálfur-heill-hálfur).
Hefja má veiði kl 15.00 á fyrsta degi og hús þarf að vera yfirgefið kl 13.00 á lokadegi.
Veiðitími er frjáls en innan 6 tíma hálfu dagana og 12 tíma heilu dagana.
Veiðihúsið er í Hörgslandi. Húsið er ekki stórt en gisting er fyrir samtals 6 manns.
Hægt er að leigja auka hús vilji menn láta fara betur um sig.
AÐEINS MÁ VEIÐA Á FLUGU OG SKAL ÖLLUM FISKI SLEPPT