Húsið er með 4 svefnpláss með dýnum, neðri plássin eru breiðari ( ein og hálf breidd) og geta hæglega rúmað 2 manneskjur. Húsið er með rennandi kalt vatni í krana, rafmagns lýsingu og gaskyndingu. Þar er eldurnaraðstaða og búsáhöld.
Gasgrill er við húsið og eru menn beðnir um að þrífa það eftir notkun !
Á staðnum lítið hús þar sem er sameiginleg salernisaðstaða fyrir bæði veiðihúsin.
Menn eru beðnir um að ganga vel um húsið og skilja við það hreint og snyrtilegt. Þegar menn fá lykilinn afhentan fá þeir tuskur til að þrífa með, menn eru beðnir að skila óhreinum tuskum þegar þeir skila lyklinum aftur !
Skipti fara fram kl 17:00, sé enginn í húsinu þegar komið er á svæðið er sjálfsagt að menn setjist fyrr að.
Helgar dagar – 28800kr.
Virkir dagar – 23400kr.