Tungufljót Í Skaftártungu
Tungufljót í Skaftártungum, Vestur-Skaftafellssýslu. Upptök Tungufljóts eru á Saftártunguafrétti og dragast til þess margir lækir á leið til ósa í Kúðafljóti. Umhverfið er Stórbrotið, hraun, sandar og er fljótið allvíða í þröngum farvegi með grónum bökkum. Mjög margir góðir veiðistaðir eru í Tungufljóti. Aðal fisktegundin er vænn sjóbirtingur og veiðast reglulega fiskar yfir 20 pund. Einnig veiðist þar lax, bleikja og staðbundinn urriði. Í Tungufljóti er gott veiðihús og veitt á 4 stangir á dag. Aðeins er veitt á flugu í Tungfljóti og öllum fiski skal sleppt.
VEIÐIHÚSIN
Veiðihúsin standa í hlíð í landi Hemru með stórkostlegu útsýni yfir meirihluta veiðisvæðisins. Í stærra húsinu eru 2 tveggja manna herbergi , svefnloft, rúmgóð stofa og eldhús, salerni og sturta. Í minna húsinu eru 2 tveggja manna herbergi, salerni og sturta. Veiðimenn mega koma og vera farnir klukkutíma fyrir veiði nema eftir 20. september þá mega menn koma þegar veiði byrjar. Gasgrill er til staðar. Vinsamlegast gangið vel um veiðihúsið og þrífið veiðihúsið vel fyrir brottför. Skiljið við veiðihúsið í jafngóðu standi og þið viljið taka við því. Við hvetjum veiðimenn um að láta vita ef eitthvað vantar eða er ábótavant við veiðihúsið.
VEIÐIREGLUR
Í ánni eru leyfðar 4 stangir. Um hverja stöng mega vera 2 veiðimenn og skulu þeir þá vera saman á veiðistað. Ef veiðimenn eru staðnir að því að nota fleiri stangir en leyfilegt er, mega þeir búast við því að vera vísað úr ánni.
Leyfilegt agn er fluga og aðeins er veitt á flugustangir en kaststangir eru ekki heimilar. Öllum fiski skal sleppt að lokum viðureignar. Særður fiskur skal njóta vafans.
VEIÐITÍMI
MIÐSUMARSVEIÐI OG STAÐBUNDINN FISKUR
TIL ATHUGUNAR
- Skráið afla í veiðibókina áður en haldið er heim.
- Akið ekki utan vega og lokið hliðum.
- Veiðifélagið ber ekki ábyrgð v/tjóns sem búsmali veldur á ökutækjum.
- Meðferð skotvopna er bönnuð við ána og einnig er óheimilt að tjalda við ána án leyfis landeigenda.
- Vinsamlegast gangið vel um
- Innifallið í öllum leyfum er uppábúin rúm, handklæði og þrif
- Vinsamlegast látið vita hversu margir verða í húsi
Veiðitímabil: 1. apríl - 20. október
Meðalstærð: 8 pund
Fjöldi stanga: 4
Leyfilegt agn: Fluga
Veiðibúnaður: #6-8, sökkenda
Bestu flugurnar: Straumflugur
Aðgengi:
Húsnæði: Veiðihúsið Tungufljóti
Veiðileyfi
Verð miðast við eina stöng í tvo daga